Öldungaráð, fundur 8
26. janúar 2023, kl. 14:30 til 15:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Rósa Dröfn Pálsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
- Ólafur Helgi Gunnarsson, aðalmaður
- Jórunn Bjarnadóttir, aðalmaður
- Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, aðalmaður
- Þórarinn Viðfjörð Guðnason, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Rósa Dröfn Pálsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Félagsmálanefnd, fundur 165 liður 4
Farið var yfir fundargerð öldungarráðs.
Dagskrá
-
1. Öldungaráð
Mál 1610001 Allur ferill málsins
Kosinn formaður Öldungaráðs er Arndís Bára Pétursdóttir.
Kosinn varaformaður Öldungaráðs er Árni Þórhallur Helgason.
-
2. Hafnargjöld fyrir eldri borgara
Mál 2006145 Allur ferill málsins
Erindi Gunnars Geirs Kristjánssonar er varðar hafnargjöld eldri borgara í Fjarðabyggð. Öldungaráð vísaði málinu til hafnarstjórnar með beiðni um að afstaða yrði tekin til málsins. Hafnarstjórn tók málið fyrir á 274.fundi sínum. Hafnarstjórn hefur áður fjallað um erindi sem þetta og hefur ekki orðið við erindunum þar sem það fellur ekki undir reglur hafnarsjóðs.
-
3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Mál 2205271 Allur ferill málsins
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023-2026 er frestað til næsta fundar.