Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 154

21. júní 2022, kl. 16:15 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Þórhallur Árnason, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 756 liður 11

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 335 liður 5

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 21. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Félagsmálanefnd 2022

    Mál 2201062 Allur ferill málsins

    Farið er yfir fundartíma nefndarinnar fram að áramótum 2022/2023. Nefndin samþykkir fundartíma í samræmi við tillögur í minnisblaði stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar.

    Kynnt er minnisblað sem lagt var fyrir félagsmálanefnd vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun yfirstandandi árs.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022

    Mál 2104133 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir rekstur málaflokka nefndarinnar, ásamt öðrum stjórnendum sem hafa með málefni nefndarinnar að gera. Farið er yfir rekstur fyrstu fjóra mánuði ársins.

  3. 3. Sprettur

    Mál 2001250 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir minnisblað um Sprett.

  4. 4. Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög

    Mál 2103044 Allur ferill málsins

    Formaður nefndar kynnir bréf Jafnréttisstofu, dags. 2. mars 2021 um áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög, þar sem bent er á skyldur sveitarfélagsins að endurskoða jafnréttisáætlun að afloknum kosningum í maí 2022. Nefndin felur sviðsstjóra að endurskoða jafnréttisáætlun sveitarfélagsins og leggja fyrir nefndina á næsta fundi hennar.

  5. 5. Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði

    Mál 2205281 Allur ferill málsins

    Formaður félagsmálanefndar kynnir bréf félags eldriborgara á Eskifirði, dags. 25. maí 2022 og bókanir bæjarráðs og bæjarstjórnar.