Félagsmálanefnd, fundur 155
9. ágúst 2022, kl. 16:15 til 16:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varamaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Óskar Sturluson, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 760 liður 15
Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. ágúst sl. lögð fram til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir fundargerð félagsmálanefndar með fullnaðarumboði til afgreiðslu mála meðan leyfi bæjarstjórnar stendur.
Dagskrá
-
1. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Formaður félagsmálanefndar kynnir skipan fulltrúa í Öldungaráðs Fjarðabyggðar fyrir nefndinni.
-
2. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2022
Mál 2205195 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir ársskýrslu og ársreikning Starfa fyrir árið 2021.
-
3. Tímabundinn styrkur til sveitarfélaga vegna tómstunda- og menntunarúrræða barna á flótta Síðari úthlutun
Mál 2208009 Allur ferill málsins
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir tölvubréf Mennta- og barnamálaráðuneytisins, dags. 2. ágúst 2022, þar sem vakin er athygli sveitarfélaga á að sveitarfélög geti sótt um stuðning vegna móttöku barna á flótta.
-
4. Félag heyrnarlausra óskar eftir styrk
Mál 2208002 Allur ferill málsins
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir tölvubréf Félags heyrnalausra þar sem óskað eftir að styrk vegna þátttöku heyrnalausra ungmenna og leiðbeinanda á vegum félagsins á Norðurlandamót og Evrópumót ungmenna á aldrinum 8-15 ára. Félagsmálanefnd þakkar fyrirspurnina en telur sér því miður ekki fært að verða við styrkbeiðninni að þessu sinni. Stjórnanda félagsþjónustu er falið að svara beiðninni fyrir hönd nefndarinnar.
-
5. Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð
Mál 2207054 Allur ferill málsins
Málinu er frestað til næsta fundar nefndarinnar. Lagt er fyrir sviðststjóra að taka saman stutta kynningu fyrir nefndina um helstu niðurstöður.