Félagsmálanefnd, fundur 156
6. september 2022, kl. 16:15 til 18:22, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Inga Rún Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Þórhallur Árnason, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Inga Rún Beck Sigfúsdóttir
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 764 liður 11
Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. september lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 338 liður 5
Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. september er staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023
Mál 2208080 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri kynnir fjárhagsramma fyrir málaflokk 02 félagsþjónustu fyrir árið 2023. Félagsmálanefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna fjárhagsáætlun með tilliti til hagræðingar í rekstri og leggja fyrir að nýju.
-
2. Sprettur -samþætting þjónustu
Mál 2001250 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir vinnu og verklag samþættingu þjónustu í Fjarðabyggð. Félagsmálanefnd felur starfsmanni nefndar að láta þýða bæklinginn um farsældarþjónustu barna.
-
3. Reglur 2022
Mál 2209008 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri kynnir til samþykktar drög að nýjum reglum varðandi samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Félagsmálanefnd samþykkir drög að reglum um þjónustu í þágu farsældar barna fyrir sitt leyti.
-
4. Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 15. September 2022
Mál 2208067 Allur ferill málsins
Lagt er fram til kynningar landsfundur jafnréttismála sem haldin verður á Akureyri 15. september 2022. Formaður félagsmálanefndar fer fyrir hönd Fjarðabyggðar.
-
5. Rekstraryfirlit 2022
Mál 2209009 Allur ferill málsins
Sviðstjóri fjölskyldusviðs fer yfir hálfsárs rekstraryfirlit félagsmála- og barnaverndar.