Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög
Mál 2103044 Fyrst á dagskrá 23. maí 2022, síðast 30. júní 2022. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Bæjarráð, fundur 753 liður 7
Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög.
Lesa alla bókunina (120 orð til viðbótar)
Í lögunum um stjórnsýslu jafnréttismála er í 13. gr. fjallað um skyldur sveitarfélaga.Um er að ræða töluverðar breytingar frá lögum nr. 10/2008. Áætlanir sveitarfélaga í jafnréttismálum skulu nú taka til markmiða og aðgerða til að koma í veg fyrir mismunun, ekki eingöngu vegna kyns sbr. lög nr. 150/2020, heldur einnig sbr. lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna nr. 85/2018 og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun,skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu nr.86/2018. Þá hefur einnig verið gerð sú breyting að ekki er lengur kveðið á um skipunsérstakra jafnréttisnefnda heldur skal sveitarstjórn fela byggðaráði eða annarri fastanefnd sveitarfélagsins að fara með jafnréttismál.
Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðun jafnréttisstefnu til nýrrar félagsmálanefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 332 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 753“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Félagsmálanefnd, fundur 154 liður 4
Formaður nefndar kynnir bréf Jafnréttisstofu, dags. 2. mars 2021 um áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög, þar sem bent er á skyldur sveitarfélagsins að endurskoða jafnréttisáætlun að afloknum kosningum í maí 2022. Nefndin felur sviðsstjóra að endurskoða jafnréttisáætlun sveitarfélagsins og leggja fyrir nefndina á næsta fundi hennar.
-
Bæjarráð, fundur 756 liður 11.4
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 154“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 335 liður 5.4
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 154“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.