Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 756

27. júní 2022, kl. 08:30 til 09:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 335 liður 1

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 27. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar

    Mál 2206068 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að ungmenni á þrettánda ári fá aðgeng að líkamsræktum Fjarðabyggðar. Gildir frá 1. júní ár hvert fyrir ungmenni sem eru á þrettánda ári.

    Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.

  2. 2. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026, skipan upplýsingaöryggisnefndar

    Mál 2205172 Allur ferill málsins

    Skipan í upplýsingaöryggisnefnd. Bæjarráð kýs fimm fulltrúa í upplýsingaöryggisnefnd. Upplýsingaöryggisnefnd er bæjarráði til ráðuneytis um persónuverndar- og upplýsingaöryggismál. Bæjarráð samþykkir að nefndina skipi bæjarritari, stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar, fræðslustjóri, forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála ásamt persónuverndarfulltrúa.

  3. 3. Erindi til sveitarstjórnar vegna stefnumótunar í þremur málaflokkum

    Mál 2206084 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu vegna stefnumótunar. Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga 2019-2033 og Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt því að móta nýja húsnæðisstefnu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjórum að svara umbeðnum upplýsingum.

  4. 4. Endurskoðun samþykktar um bygginganefnd í Fjarðabyggð

    Mál 2206094 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að uppfærðri samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð vegna breytinga á samþykktum sveitarfélagsins. Samþykktin var upphaflega samþykkt árið 2013, 820/2013.

    Bæjarráð samþykkir uppfærðar samþykktir fyrir sitt leyti og vísar þeim til fyrri umræðu bæjarstjórnar og kynningar umhverfis- og skipulagsnefndar.

  5. 5. 735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð

    Mál 2201124 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn fyrir geymsluhúsnæði að Dalbraut 10 á Eskifirði en afgreiðslu umsóknar lóðar var frestað þar sem deiliskipulag var ekki tilbúið en nú hefur það verið staðfest.

    Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar.

  6. 7. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2022

    Mál 2206097 Allur ferill málsins

    Fjármálaráðstefna sveitarfélaga er áformuð 13. til 14. október.

    Bæjarráð samþykkir að gefa aðalfulltrúum bæjarstjórnar kost á að sitja fyrstu fjármálaráðstefnu kjörtímabilsins. Bæjarráð ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra sitja ráðstefnuna.

  7. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022

    Mál 2104136 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarsjóði til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2022.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2022.

  8. 9. Hafnarstjórn - 279

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu

    1. 9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20222104136
    2. 9.2 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    3. 9.3 World Hydrogen Summit 20222205197
    4. 9.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss2206006
  9. 10. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. júní lögð fram til afgreiðslu

    1. 10.1 Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar2205298
    2. 10.2 750 Hafnargata 23 - Framkvæmdaleyfi, fylling2104008
    3. 10.3 750 Framkvæmdaleyfi - Strenglögn frá Fáskrúðsfirði að Kolfreyjustað2205237
    4. 10.4 740 Ingunarveita að gatnamótum Leiruvegar og Hafnarnaust - Framkvæmdaleyfi vegna skurða í tengslum við stofnlögn2205286
    5. 10.5 Umhverfismál 20222201005
    6. 10.6 Nytjamarkaður, Fjb.2004108
    7. 10.7 730 Búðarmelur 27 - umsókn um lóð2205141
    8. 10.8 730 Búðarmelur 29 - umsókn um lóð2205142
    9. 10.9 730 Búðarmelur 31 - umsókn um lóð2205143
    10. 10.10 740 Naustahvammur 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2205119
    11. 10.11 735 Karlsstaðir - Umsókn um byggingarheimild, skálavarðarhús2205128
    12. 10.12 760 Sólheimar 9 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús2205267
    13. 10.13 740 Egilsbraut 26 - umsókn um stöðuleyfi2205216
    14. 10.14 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 20262205172
    15. 10.15 Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál.2205257
    16. 10.16 735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð2201124
  10. 11. Félagsmálanefnd - 154

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu

    1. 11.1 Félagsmálanefnd 20222201062
    2. 11.2 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20222104133
    3. 11.3 Sprettur2001250
    4. 11.4 Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög2103044
    5. 11.5 Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði2205281
  11. 12. Íþrótta- og tómstundanefnd - 100

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu

    1. 12.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vetur 2022
    2. 12.2 Notkun íþrótta- og tómstundastyrk barna fyrir líkamsræktir Fjarðabyggðar
    3. 12.3 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
    4. 12.4 Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar
    5. 12.5 Umsókn um íþróttastyrk
    6. 12.6 Umsókn um íþróttastyrk
    7. 12.7 Umsókn um íþróttastyrk
    8. 12.8 Fjárhagsyfirlit íþrótta- og tómstundamála 2022
    9. 12.9 Talning þátttakenda vegna styrkveitinga meginfélaga
    10. 12.10 Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-19
    11. 12.11 Íþrótta- og tómstundasvið yfirlit 2022
  12. 13. Barnaverndarnefnd 2022

    Mál 2202112 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar frá 21. júní lögð fram til afgreiðslu.

  13. 14. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 24. júní lögð fram til afgreiðslu

    1. 14.1 Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar2205296
    2. 14.2 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga2205172
    3. 14.3 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 fulltrúar í stjórn Sjóminjasafns Austurlands2205172
    4. 14.4 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands2205172
    5. 14.5 Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    6. 14.6 Verkefni menningarstofu 20222109214
    7. 14.7 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20222204141
    8. 14.8 Menningar- og listahátíðin innsævi2206085