Hafnarstjórn, fundur 279
14. júní 2022, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 756 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 335 liður 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Mál 2104136 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit yfir framkvæmdir Fjarðabyggðarhafna á árinu 2022. Hafnarstjórn fór yfir yfirlitið og samþykkir að gerður verður viðauki við fjárhagsáætlun 2022 og vísar því til bæjarráðs.
-
2. Fóðurprammi sekkur við Gripalda
Mál 2101071 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðuna í áætlunum um að ná fóðurpramma Laxa Fiskeldis ehf. af hafsbotni við Gripalda. Verkefnastjóri hafna fór yfir stöðu málsins. Hafnarstjórn leggur áherslu á við TM að farið verði í að fjarlægja prammann nú meðan hentugar aðstæður eru til verksins.
-
3. World Hydrogen Summit 2022
Mál 2205197 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað frá atvinnu- og þróunarstjóra, verkefnastjóra hafna og fjármálastjóra um veru þeirra á ráðstefnu um vetni í Rotterdam
-
4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss
Mál 2206006 Allur ferill málsins
Erindi frá Eimskip dags. 25.maí 2022 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Kristján Örn Ólafsson, skipstjóra á Dettifossi. Hafnarstjórn samþykkir umbeðna undanþágu.