Hafnarstjórn, fundur 278
23. maí 2022, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, varamaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 332 liður 3
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 23. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Jarðkönnun í Reyðarfirði - framtíðariðnaðarsvæði
Mál 2205206 Allur ferill málsins
Lagður fram samningur og kostnaðaráætlun frá Verkís um jarðkönnun í Reyðarfirði. Hafnarstjórn samþykkir samninginn og felur hafnarstjóra undirritun hans.
-
2. Umsögn vegna umsóknar hafnsöguskírteinis
Mál 2205048 Allur ferill málsins
Lögð fram umsögn vegna umsóknar Egils Guðjónssonar um hafnsöguskírteini. Hafnarstjórn samþykkir umsögn.
-
3. Skemmtiferðaskip í Fjarðabyggðarhöfnum
Mál 2205243 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað verkefnastjóra hafna vegna bókana skemmtiferðaskipa. Hafnarstjórn er sammála um að heimila ekki landtöku farþega skemmtiferðaskipa með léttabátum enda hafnarkantar til reiðu. Verkefnastjóra hafna falið að koma þessu á framfæri við umboðsmenn útgerðanna.
-
4. Beiðni um styrk vegna heimildaöflunar og fleiru tengdum sjávarjörðum og verstöðvum
Mál 2205248 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá Ínu Dagbjörtu Gísladóttur um styrk vegna heimildaöflunar og fleira tengdu sjávarjörðum og verstöðvum, meðal annars á Gerpissvæðinu. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk og felur hafnarstjóra að ganga frá málinu.
-
5. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2022
Mál 2204084 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar ársreikningur og fundargerð aðalfundar Fiskmarkaðs Austurlands sem haldinn var 25. apríl síðastliðinn.
-
6. Aðalfundur Cruise Iceland 2022
Mál 2205196 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Cruise Iceland og fundargerð aðalfundar samtakanna sem var haldinn föstudaginn 5.maí síðastliðinn.