Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 755

13. júní 2022, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 334 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026

    Mál 2205271 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit fjármálastjóra um rekstur Fjarðabyggðar á árabilinu 2014 - 2021.

  2. 2. Samningur um rekstur Norðfjarðarflugvallar

    Mál 2001185 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar framlengdur samningur um rekstur Norðfjarðarflugvallar fyrir árin 2022 og 2023.

    Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti.

  3. 3. Fasteignamat 2023

    Mál 2206028 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantekt fjármálastjóra á breytingum á fasteignamati í Fjarðabyggð milli áranna 2022 og 2023, auk áætlunar um álagningu fasteignagjalda að óbreyttum álagningarreglum.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  4. 4. Upplýsingatæknimál - búnaður kjörinna fulltrúa

    Mál 2206038 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um búnað kjörinna fulltrúa og hugmyndir að útfærslu á búnaðarkaupum.

    Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði.

  5. 5. World Hydrogen Summit 2022 - trúnaðarmál

    Mál 2205197 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað frá atvinnu- og þróunarstjóra, verkefnastjóra Fjarðabyggðarhafna og fjármálastjóra, um ferð þeirra á ráðstefnu um vetni í Rotterdam.

  6. 6. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022

    Mál 2112033 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kyningar minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um umsóknir og afgreiðsla Ferðamálstofu vegna Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 2022.

  7. 7. Fiskeldissjóður - umsóknir 2022

    Mál 2202187 Allur ferill málsins

    Framlagður rökstuðningur matvælaráðuneytis vegna afgreiðslu umsókna Fjarðabyggðar um styrk til innviðauppbyggingar vegna þjónustumiðstöðvar og heimasíðu.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir undrun sinni á rökstuðningi Fiskeldissjóðs vegna umsókna sveitarfélagsins í sjóðinn á þessu ári. Miðað við úthlutun síðasta árs og þá þætti sem notaðir eru vegna úthlutana þá hefðu umsóknir Fjarðabyggðar átt að fá fleiri matsþætti viðurkennda. Styrkir þessi niðurstaða ennfrekar þá skoðun sveitarfélagsins að mikilvægt sé að koma gjaldtöku af fiskeldi í þann farveg að sveitarfélögin sem það hýsa innheimti hana beint og nýti til uppbyggingar innviða sinna án þess að rökstyðja þurfi það fyrir nefndum á vegum ríkisins og taka þátt í samkeppni við önnur sveitarfélög.

  8. 8. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði

    Mál 2201189 Allur ferill málsins

    Athugasemdarfrestur við deiliskipulagið Dalur athafnasvæði er liðinn. Engar athugasemdir bárust.

    Bæjarráð samþykkir deiliskipulagið í umboði umhverfis- og skipulagsnefndar og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Aðalfundarboð 2022 - Olíusamlagið

    Mál 2206037 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað svf. verður haldinn í Múlanum samvinnuhúsi Neskaupstað, miðvikudaginn 15. júní kl. 17:00.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra fullt og ótakmarkað umboð á fundinum.

  10. 10. Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands 2022

    Mál 2206039 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands fyrir árið 2022. Aðalfundur er boðaður 22. júní nk.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með fullt og ótakmarkað umboð Fjarðabyggðar á fundinum.