Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 754

7. júní 2022, kl. 08:30 til 11:03, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 334 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2204062 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir fyrir janúar - apríl og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - maí 2022

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026

    Mál 2205271 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga fjármálastjóra um reglur fyrir gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árin 2023 - 2026.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar.

  3. 3. Viðbótargreiðsla til B deildar Brúar lífeyrissjóðs vegna Líf. Neskaupstaðar

    Mál 2206013 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Brú lífeyrissjóði um viðbótarframlag að fjárhæð 85 milljónir kr. til að tryggja að höfuðstóll sjóðsins nemi tvöfaldri greiðslu undanfarins árs. Um er að ræða ákvæði í samþykktum sjóðsins. Ekki er gert ráð fyrir þessari greiðslu á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir greiðslu til lífeyrissjóðsins og vísar henni til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2022. Jafnframt er bæjarstjóra falið að ræða við framkvæmdastjóra sjóðsins um þetta ákvæði samþykktanna.

  4. 4. Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 2201064 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar útboð á innkaupum á skólamáltíðum í þremur grunnskólum Fjarðabyggðar. Málið var tekið fyrir síðast á fundi bæjarráðs 17. janúar sl., þar sem ákveðið var að bjóða máltíðirnar út.

  5. 5. Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál.

    Mál 2205257 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 8. júní nk. Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði

    Mál 2205281 Allur ferill málsins

    Bréf Félags eldri borgara á Eskifirði er varðar húsnæðismál félagsins.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn félagsins.

  7. 7. Haustþing SSA 2022

    Mál 2206005 Allur ferill málsins

    Haustþings SSA verður haldið 9. til 10. september í Fjarðabyggð. Stjórn SSA hefur falast eftir því að Fjarðabyggð haldi haustþing fyrir árið 2022.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og bæjarritara að hefja undirbúning að þinginu í samstarfi við stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  8. 8. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022

    Mál 2205294 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs breytingum á 62. gr. samþykkta um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar, breyting á nefndaskipan ásamt afleiddum breytingum á viðauka um fullnaðarafgreiðslur.

    Bæjarráð samþykkir breytingar á samþykktunum fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  9. 9. Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar

    Mál 2205296 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs nýju erindisbréfi stjórnar menningarstofu og safnastofnunar en stjórnin tekur við hluta af verkefnum menningar- og nýsköpunarnefndar.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  10. 10. Erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar

    Mál 2205297 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar bæjarráðs nýju erindisbréfi fyrir mannvirkja- og veitunefnd en nefndin tekur við hluta af verkefnum eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  11. 11. Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar

    Mál 2205298 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs nýju erindisbréfi fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd en nefndin tekur við hluta af verkefnum eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  12. 12. Erindisbréf fjallskilanefndar

    Mál 2205302 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs nýju erindisbréfi fjallskilanefndar en nefndin tekur við hluta af verkefnum landbúnaðarnefndar.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  13. 13. Ráðning bæjarstjóra 2022 - 2026

    Mál 2205295 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs ráðningarsamningi við bæjarstjóra.

    Bæjarráð felur forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs að ganga frá ráðningarsamningi sem verður lagður fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

  14. 14. Fiskeldissjóður - umsóknir 2022

    Mál 2202187 Allur ferill málsins

    Farið yfir niðurstöður úthlutunar fiskeldissjóðs 2022.

    Bókun Sjálfstæðisflokksins

    Mikilvægt er að útdeiling tekna af gjaldtöku í fiskeldi í sjó renni til sveitarfélaga þar sem nýting auðlindarinnar og starfsemi fyrirtækja í fiskeldi fari fram og þörfin til uppbyggingar þjónustu sé mest. Við setningu laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, var lögð áhersla á að hlutverk sjóðsins væri að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Í ljósi þessa eru það vonbrigði að ekkert verkefni hlaut útdeilingu úr fiskeldissjóði á þessu ári til Fjarðabyggðar. Ekkert sveitarfélag hefur að geyma jafnmikið sjókvíaeldi og Fjarðabyggð, hvort sem litið er til burðarþolsmats eða áhættumats, og því eru það sérstök vonbrigði að Fjarðabyggð hafi ekki notið sanngirnis við útdeilingu Fiskeldissjóðs í anda þeirra laga sem sjóðurinn starfar eftir.

    Skorað er á Matvælaráðherra að endurskoða útdeilingar sjóðsins með það fyrir augum að leggja Fiskeldissjóð niður. Tekjur vegna gjaldtöku fiskeldis í sjó og ætlað er til innviðauppbyggingar í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað ætti að renna beint til sveitarfélaga án aðkomu Fiskeldissjóðs miðað við lífmassa, burðarþol- eða áhættumat fjarða.

    Bæjarráð tekur undir bókunina.

  15. 15. Starfsmannamál bæjarskrifstofu í júní 2022

    Mál 2206015 Allur ferill málsins

    Farið yfir breytingar í starfsmannamálum, laus störf og starfsmannaveltu bæjarskrifstofu.