Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 334

16. júní 2022, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Bæjarráð - 754

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:08:52

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7. júní staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL2204062
    2. 1.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 20262205271
    3. 1.3 Viðbótargreiðsla til B deildar Brúar lífeyrissjóðs vegna Líf. Neskaupstaðar2206013
    4. 1.4 Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar2201064
    5. 1.5 Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál.2205257
    6. 1.6 Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði22052810:09:20
    7. 1.7 Haustþing SSA 20222206005
    8. 1.8 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 20222205294
    9. 1.9 Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar2205296
    10. 1.10 Erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar2205297
    11. 1.11 Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar2205298
    12. 1.12 Erindisbréf fjallskilanefndar2205302
    13. 1.13 Ráðning bæjarstjóra 2022 - 20262205295
    14. 1.14 Fiskeldissjóður - umsóknir 202222021870:11:12
    15. 1.15 Starfsmannamál bæjarskrifstofu í júní 202222060150:16:20
  2. 2. Bæjarráð - 755

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:18:12

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. júní staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 202622052710:18:12
    2. 2.2 Samningur um rekstur Norðfjarðarflugvallar20011850:28:00
    3. 2.3 Fasteignamat 202322060280:21:28
    4. 2.4 Upplýsingatæknimál - búnaður kjörinna fulltrúa2206038
    5. 2.5 World Hydrogen Summit 2022 - trúnaðarmál2205197
    6. 2.6 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20222112033
    7. 2.7 Fiskeldissjóður - umsóknir 202222021870:23:48
    8. 2.8 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði2201189
    9. 2.9 Aðalfundarboð 2022 - Olíusamlagið2206037
    10. 2.10 Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands 20222206039
  3. 3. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar, breytingar 2022 til síðari umræðu

    Mál 2205294 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:37:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt við síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á 62.gr. samþykktar um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar ásamt breytingum á viðauka um fullnaðarafgreiðslur. Tvær minniháttar breytingar eru gerðar í kafla i B um félagsmálanefnd og barnaverndarnefnd til að gæta samræmis við nefndakjör.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á 62. gr. samþykkta og viðauka við samþykktina.

  4. 4. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026

    Mál 2205172 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:38:44

    Forseti stjórnaði kjöri í nefndir sbr. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

    Tilnefndir eru til kjörs í nefndir og ráð sbr. 62 gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

    Lögð fram sameiginleg tillaga framboða um kjör í kjörstjórnir.

    I.B.

    Yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar

    Aðalmenn

    Gísli M. Auðbergsson formaður

    Agnar Bóasson

    Kristjana Mekkin Guðnadóttir

    Varamenn

    Gunnar Geirsson

    Magnús Jóhannsson

    Jónína Óskarsdóttir

    Undirkjörstjórn Eskifirði

    Aðalmenn

    Gunnar Jónsson formaður

    Guðrún Kristmannsdóttir

    Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir

    Varamenn

    Guðmann Þorvaldsson

    Guðfinna Björk Birgisdóttir

    Sigurður Hólm Freysson

    Undirkjörstjórn Neskaupstað

    Aðalmenn

    Þorvarður Sigurbjörnsson formaður

    Þórunn Freydís Sölvadóttir

    Sindri Sigurðsson

    Varamenn

    Eyrún Eggertsdóttir

    Sigurborg Hákonardóttir

    Þorgrímur Þorgrímsson

    Undirkjörstjórn Reyðarfirði

    Aðalmenn

    Aðalheiður Vilbergsdóttir formaður

    Andrea Borgþórsdóttir

    Hjörtur Elí Steindórsson

    Varamenn

    Hildur Magnúsdóttir

    Snorri Styrkársson

    Jóhanna Hallgrímsdóttir

    Undirkjörstjórn Stöðvarfirði

    Aðalmenn

    Svanhvít Björgólfsdóttir formaður

    Ingibjörg Björgvinsdóttir

    Sara G. Jakobsdóttir

    Varamenn

    Jóhanna Guðný Halldórsdóttir

    Guðrún Ármannsdóttir

    Solveig Friðriksdóttir

    Undirkjörstjórn Fáskrúðsfirði

    Aðalmenn

    Steinunn Elísdóttir formaður

    Jóna Petra Magnúsdóttir

    Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

    Varamenn

    Eygló Aðalsteinsdóttir

    Borghildur Hlíf Stefánsdóttir

    Berglind Ósk Agnarsdóttir

    Undirkjörstjórn Mjóafirði

    Aðalmenn

    Sigfús Vilhjálmsson formaður

    Jóhann Egilsson

    Jóhanna Lárusdóttir

    Varamenn

    Sævar Egilsson

    Marsibil Erlendsdóttir

    Erna Óladóttir

    Undirkjörstjórn Breiðdalsvík

    Aðalmenn

    Svandís Ingólfsdóttir formaður

    Anna Margrét Birgisdóttir

    Sigurður Borgar Arnaldsson

    Varamenn

    Hákon Hansson

    Helga Svanhvít Þrastardóttir

    Sævar Sigfússon

    Enginn tók til máls.

    Yfir- og undirkjörstjórnir staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    I.D.

    aðal- og varafulltrúa í öldungaráð (3)

    Aðalmenn

    Arndís Bára Pétursdóttir

    Ólafur Gunnarsson

    Árni Helgason

    Varamenn

    Einar Már Sigurðarson

    Pálína Margeirsdóttir

    Dóra Gunnarsdóttir

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum kjörið.

    II.

    fulltrúa í almannavarnarnefnd (1)

    Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum kjörið

    aðal- og varafulltrúa í stjórn Náttúrustofu Austurlands (1)

    Aðalmaður Gunnar Ólafsson

    Varmaður Heimir Gylfason

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum kjörið. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að skipa Líneik Önnu Sævarsdóttur sem sameiginlegan fulltrúa Fjarðabyggðar og Múlaþings í stjórn Náttúrustofu.

    III. fulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands (1)

    Aðalmaður Jón Björn Hákonarson

    Varamaður Ragnar Sigurðsson

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum kjörið

  5. 5. Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar - síðari umræða

    Mál 2205296 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:42:56

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi við síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar til síðari umræðu erindisbréfi stjórnar menningarstofu og safnastofnunar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar.

  6. 6. Erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar, síðari umræða

    Mál 2205297 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:43:52

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi við síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar til síðari umræðu erindisbréfi mannvirkja- og veitunefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar.

  7. 7. Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar, síðari umræða

    Mál 2205298 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:44:20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi við síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar til síðari umræðu erindisbréfi umhverfis- og skipulagsnefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar.

  8. 8. Erindisbréf fjallskilanefndar, síðari umræða

    Mál 2205302 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:44:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi við síðari umræðu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar til síðari umræða um erindisbréfi fjallskilanefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum erindisbréf fjallskilanefndar.

  9. 9. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði

    Mál 2201189 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:45:16

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir nýju deiliskipulagi.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar deiliskipulaginu Dalur - athafnasvæði. Bæjarráð hefur samþykkt deiliskipulagið í umboði umhverfis- og skipulagsnefndar. Athugasemdarfrestur við deiliskipulagið Dalur athafnasvæði er liðinn. Engar athugasemdir bárust.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulagið Dalur - athafnasvæði.

  10. 10. Reglur um gerð fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026

    Mál 2205271 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:45:44

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árin 2023 - 2026.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglurnar.

  11. 11. Ráðning bæjarstjóra 2022 - 2026

    Mál 2205295 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:47:08

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir ráðningarsamningi.

    Ráðningarsamningur við bæjarstjóra lagður fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Bókun Framsóknarflokks og Fjarðalista vegna ráðningar bæjarstjóra.

    Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks og Fjarðalista lýsa yfir ánægju sinni með að gengið hafi verið frá ráðningu Jóns Björns Hákonarsonar í starf bæjarstjóra, og óska honum velfarnaðar í störfum. Launakjör bæjarstjóra liggja fyrir í þeim ráðningasamningi sem hér er til umfjöllunar og eru þau óbreytt frá síðasta samning og eru laun bæjarstjóra 1.600.000 kr.

    Vegna bókunar Sjálfstæðismanna, og umræðu af þeirra hálfu, á síðasta fundi bæjarstjórnar er rétt að árétta að þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við ráðningu bæjarstjóra nú, og gerðar ráðningarsamnings við hann, er í fullu samræmi við það verklag sem unnið hefur verið eftir áður í Fjarðabyggð við ráðningu bæjarstjóra. Meðal annars árið 2014 þegar meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks gekk til samninga um endurráðningu þáverandi bæjarstjóra.

    Bæjarstjórn staðfestir með 5 atkvæðum ráðningarsamning bæjarstjóra, hjá sitja fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Ragnar Sigurðsson, Kristinn Þór Jónasson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Jóhanna Sigfúsdóttir.

  12. 12. 735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis

    Mál 2204036 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:03:56

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu deiliskipulags.

    Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 7. apríl að auglýsa breytingar á deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði þannig að hluti þess sem nær inn á skipulagssvæði Dals athafnasvæðis verði felldur úr gildi. Frestur til að gera athugasemdir var til 25. maí sl. og bárust ekki athugasemdir á auglýsingartíma. Deiliskipulagi er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar í umboði umhverfis- og skipulagsnefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir í umboði umhverfis- og skipulagsnefndar með 9 atkvæðum deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði.