Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 333

3. júní 2022, kl. 16:00 til 16:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Kosning forseta bæjarstjórnar 2022 - 2023

    Mál 2205291 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:32:40

    Aldursforseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.

    Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir er tilnefnd sem forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og komu ekki fram önnur framboð.

    Hjördís er því kjörin forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar með 9 atkvæðum og tók hún við stjórn fundarins.

  2. 2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar 2022 - 2023

    Mál 2205292 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:33:08

    Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.

    Tilnefnd eru sem 1. varaforseti Birgir Jónsson og 2. varaforseti Ragnar Sigurðsson. Aðrar tilnefningar eru ekki bornar fram og eru þau kjörin varaforsetar með 9 atkvæðum.

  3. 3. Kosning bæjarráðs kjörtímabilið 2022 - 2023

    Mál 2205293 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:34:04

    Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.

    Tillaga er borin fram um að aðalmenn verði: Stefán Þór Eysteinsson sem jafnframt verði formaður bæjarráðs, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður og Ragnar Sigurðsson. Aðrar tillögur voru ekki bornar fram og er kosning bæjarráðs því staðfest með 9 atkvæðum.

  4. 4. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022

    Mál 2205294 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:34:32

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt sveitarfélagsins.

    Framlögð til fyrri umræðu breytingar á 62. gr. samþykkta um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar, breyting á nefndaskipan ásamt afleiddum breytingum á viðauka um fullnaðarafgreiðslur.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa samþykktinni og viðauka til frekari vinnslu bæjarráðs og síðari umræðu bæjarstjórnar.

  5. 5. Erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar

    Mál 2205297 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:36:52

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi.

    Framlagt nýtt erindisbréf fyrir mannvirkja- og veitunefnd en nefndin tekur við hluta af verkefnum eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi til frekari vinnslu bæjarráðs og til síðari umræðu í bæjarstjórn. Jafnframt verði erindisbréf kynnt í mannvirkja- og veitunefnd á fyrsta fundi nefndarinnar.

  6. 6. Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar

    Mál 2205298 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:37:20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi.

    Framlagt nýtt erindisbréf fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd en nefndin tekur við hluta af verkefnum eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi til frekari vinnslu bæjarráðs og til síðari umræðu í bæjarstjórn. Jafnframt verði erindisbréf kynnt í umhverfis- og skipulagsnefnd á fyrsta fundi nefndarinnar.

  7. 7. Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar

    Mál 2205296 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:37:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi.

    Framlagt nýtt erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar en stjórnin tekur við hluta af verkefnum menningar- og nýsköpunarnefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi til frekari vinnslu bæjarráðs og til síðari umræðu í bæjarstjórn. Jafnframt verði erindisbréf kynnt í stjórn menningarstofu og safnastofnunar á fyrsta fundi nefndarinnar.

  8. 8. Erindisbréf félagsmálanefndar

    Mál 1805116 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:38:16

    Forseti bæjarstjórnar mæti fyrir tillögu.

    Framlögð tillaga um að félagsmálanefnd sé falið tímabundið verkefni barnaverndarnefndar og gegni hlutverki hennar til 1. janúar 2023 þegar ný barnaverndarlög taki gildi. Starfar nefndin eftir núgildandi óbreyttu erindisbréfi barnaverndarnefndar. Fulltrúar félagsmálanefndar, aðal- og varamenn taka sæti

    eftir sömu skipan í barnaverndarnefnd.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir tillögu um 9 atkvæðum.

  9. 9. Erindisbréf fjallskilanefndar

    Mál 2205302 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:39:12

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir erindisbréfi.

    Framlagt nýtt erindisbréf fjallskilanefndar en nefndin tekur við hluta af verkefnum landbúnaðarnefndar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi til frekari vinnslu bæjarráðs og til síðari umræðu í bæjarstjórn. Jafnframt verði erindisbréf kynnt í fjallskilanefnd á fyrsta fundi nefndarinnar.

  10. 10. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026

    Mál 2205172 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:39:40

    Forseti bæjarstjórnar lagði fram sameiginlega tillögu framboða um kosning nefnda.

    Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, i, b-hluti, skipan til 4 ára.

    Félagsmálanefnd

    Aðalmenn:

    Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir formaður (L)

    Þórhallur Árnason varaformaður (B)

    Tinna Hrönn Smáradóttir (B)

    Ragnar Sigurðsson (D)

    Barbara Izabela Kubielas (D)

    Varamenn:

    Kamilla Borg Hjálmarsdóttir (L)

    Eygerður Ósk Tómasdóttir (D)

    Jóhanna Sigfúsdóttir (D)

    Ásmundur Páll Hjaltason (B)

    Helga Rakel Arnardóttir (B)

    Fulltrúar félagsmálanefndar taka sæti í barnaverndarnefnd sömu skipunar

    eins og aðal- og varafulltrúar félagsmálanefndar.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd

    Aðalmenn:

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður (B)

    Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður (L)

    Birkir Snær Guðjónsson (L)

    Kristinn Þór Jónasson (D)

    Heimir Snær Gylfason (D)

    Varamenn:

    Björgvin Valur Guðmundsson (L)

    Jóhanna Guðný Halldórsdóttir (L)

    Bjarni Stefán Vilhjálmsson (B)

    Benedikt Jónsson (D)

    Ingunn Eir Andrésdóttir (D)

    Fræðslunefnd

    Aðalmenn:

    Birgir Jónsson formaður (B)

    Salóme Harðardóttir varaformaður (L)

    Jónas Eggert Ólafsson (L)

    Ingi Steinn Freysteinsson (D)

    Jóhanna Sigfúsdóttir (D)

    Varamenn:

    Malgorzata Beata Libera (L)

    Birta Sæmundsdóttir (L)

    Bjarney Hallgrímsdóttir (B)

    Sigurjón Rúnarsson (D)

    Magni Þór Harðarson (D)

    Hafnarstjórn

    Aðalmenn:

    Arnfríður Eide Hafþórsdóttir formaður (B)

    Stefán Þór Eysteinsson varaformaður (L)

    Einar Hafþór Heiðarsson (L)

    Ragnar Sigurðsson (D)

    Heimir Snær Gylfason (D)

    Varamenn:

    Karen Ragnarsdóttir (B)

    Adam Ingi Guðlaugsson (L)

    Eydís Ásbjörnsdóttir (L)

    Sævar Guðjónsson (D)

    Ingi Steinn Freysteinsson (D)

    Íþrótta- og tómstundanefnd

    Aðalmenn:

    Arndís Bára Pétursdóttir formaður (L)

    Jón Kristinn Arngrímsson varaformaður (B)

    Kristinn Magnússon (B)

    Þórdís Mjöll Benediktsdóttir (D)

    Sigurjón Rúnarsson (D)

    Varamenn:

    Guðfinna Erlín Stefánsdóttir (B)

    Bjarney Hallgrímsdóttir (B)

    Katrín Birna Viðarsdóttir (L)

    Eygerður Ósk Tómasdóttir (D)

    Ingunn Eir Andrésdóttir (D)

    Mannvirkja- og veitunefnd

    Aðalmenn:

    Stefán Þór Eysteinsson formaður (L)

    Elís Pétur Elísson varaformaður (B)

    Pálína Margeirsdóttir (B)

    Bryngeir Ágúst Margeirsson (D)

    Kristinn Þór Jónasson (D)

    Varamenn:

    Birkir Snær Guðjónsson (L)

    Ívar Dan Arnarson (B)

    Árni Björn Guðmundsson (B)

    Þórdís Mjöll Benediktsdóttir (D)

    Árni Helgason (D)

    Stjórn Menningarstofu og safnastofnunar

    Aðalmenn:

    Pálína Margeirsdóttir formaður (B)

    Birta Sæmundsdóttir varaformaður (L)

    Bjarki Ingason (B)

    Guðbjörg Sandra Óðinsdóttir Hjelm (D)

    Benedikt Jónsson (D)

    Varamenn:

    Sigrún Birgisdóttir (L)

    Elsa Guðjónsdóttir (B)

    Margrét Sigfúsdóttir (B)

    Guðjón Birgir Jóhannsson (D)

    Ingunn Eir Andrésdóttir (D)

    Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, iii, tilnefningar og kosningar a-hluti,

    Kosning fulltrúa á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    Aðalmenn

    Stefán Þór Eysteinsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Kristinn Þór Jónasson

    Varamenn

    Birgir Jónsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Jóhanna Sigfúsdóttir.

    Sameiginleg tillaga framboðanna í Fjarðabyggð er samþykkt með 9 atkvæðum.

  11. 11. Ráðning bæjarstjóra 2022 - 2026

    Mál 2205295 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:43:52

    Lögð fram tillaga um ráðningu Jóns Björns Hákonarsona sem bæjarstjóra kjörtímabilið 2022 til 2026.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson.

    Bókun: Bókun Sjálfstæðisflokksins vegna ráðningu bæjarstjóra Fjarðabyggðar 2022- 2026

    Sjálfstæðisflokkurinn greiðir atkvæði gegn ráðningu Jóns Björns Hákonarsonar sem bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að ráðin verði bæjarstjóri á faglegum forsendum.

    Þá gerir Sjálfstæðisflokkurinn alvarlegar athugasemdir við að ekki liggi fyrir skriflegur ráðningarsamningur áður en tekin er afstaða til ráðningarinnar. Ekki hefur verið kynntur ráðningarsamningur fyrir bæjarfulltrúum áður en málið er tekið fyrir sem verður að teljast sérkennilegt þar sem um endurráðningu er að ræða og því ætti að vera hægur leikur að vera með ráðningarsamning bæjarstjóra sem fylgiskjal málsins. Þar af leiðandi eru engin gögn um ráðningarkjör, gildistíma, biðlaunarétt eða annað er varðar ráðninguna. Vandséð er að hægt sé að taka efnislega ákvörðun um ráðningu bæjarstjóra án þess að ráðningarsamningur hafi verið kynntur sem hægt sé að taka afstöðu til á þessu stigi.

    Að öðru leyti óskar Sjálfstæðisflokkurinn Jóni Birni Hákonarsyni velfarnaðar í starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar.

    Bæjarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum að Jón Björn Hákonarson verði ráðinn bæjarstjóri kjörtímabilið 2022 til 2026 og felur bæjarráði að ganga frá ráðningarsamningi við hann. Sjálfstæðisflokkurinn greiðir atkvæði gegn tillögu, Ragnar Sigurðsson, Kristinn Þór Jónasson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og Jóhanna Sigfúsdóttir.