NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 1
20. júní 2022, kl. 16:00 til 18:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 756 liður 10
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. júní lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 335 liður 3
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. júní staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
Mál 2205298 Allur ferill málsins
Formaður fór yfir erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar til kynningar.
Nefndin samþykkir að vera með fundartíma á mánudögum kl.16:00 og tíðni ákveðin eftir umfangi.
-
2. 750 Hafnargata 23 - Framkvæmdaleyfi, fylling
Mál 2104008 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Loðnuvinnslunnar hf. um framkvæmdaleyfi vegna viðbótarlandfyllingar, úr 4000 m3 í 7000 m3, við Hafnargötu 23, Fáskrúðsfirði. Samkvæmt umsókn er ekki breyting á verkinu annað en magn landfyllingarefnis er aukið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir leyfisumsókn til viðbótarlandfyllingar á allt að 3000 m3 efni.
-
3. 750 Framkvæmdaleyfi - Strenglögn frá Fáskrúðsfirði að Kolfreyjustað
Mál 2205237 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Rarik ohf. um framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar frá Fáskrúðsfirði að Kolfreyjustað. Ljósleiðari á vegum sveitarfélagsins og Mílu verða plægðir um leið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir beiðnina.
-
4. 740 Ingunarveita að gatnamótum Leiruvegar og Hafnarnaust - Framkvæmdaleyfi vegna skurða í tengslum við stofnlögn
Mál 2205286 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi vegna skurða í stofnlögn í Norðfirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdina.
-
5. Umhverfismál 2022
Mál 2201005 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstýru, dags. 7. júní 2022, er varðar mögulega næringarofauðgun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur umhverfis- og skipulagssviði að óska eftir afstöðu HAUST til ábendingar. Jafnframt er sviðinu falið að kanna fráveitumál á svæðinu og upplýsa nefndina um aðstæður. Nefndin óskar eftir tafarlausum úrbótum ef grunur er á rökum reistur.
-
6. Nytjamarkaður, Fjb.
Mál 2004108 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað umhverfisstýru, dagsett 16. júní 2022, um nytjamarkað.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur málið upp að nýju eftir nánari athugun í haust.
-
7. 730 Búðarmelur 27 - umsókn um lóð
Mál 2205141 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn AMC wave ehf, dagsett 11. maí 2022, þar sem sótt er um einbýlishúsalóðina við Búðarmel 27 á Reyðarfirði. Jafnframt er sótt um lóðirnar við Búðarmel 29 og 31, gert er ráð fyrir að byggja tvö parhús á lóðunum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt deiliskipulagi fyrir Búðarmel eru lausar par- og raðhúsalóðir til úthlutunar og bendir umsækjanda á að skoða þá möguleika. Nefndin felur sviðsstjóra að ræða við lóðarumsækjendur.
-
8. 730 Búðarmelur 29 - umsókn um lóð
Mál 2205142 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn AMC wave ehf, dagsett 11. maí 2022, þar sem sótt er um einbýlishúsalóðina við Búðarmel 29 á Reyðarfirði. Jafnframt er sótt um lóðirnar við Búðarmel 27 og 31, gert er ráð fyrir að byggja tvö parhús á lóðunum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt deiliskipulagi fyrir Búðarmel eru lausar par- og raðhúsalóðir til úthlutunar og bendir umsækjanda á að skoða þá möguleika. Nefndin felur sviðsstjóra að ræða við lóðarumsækjendur.
-
9. 730 Búðarmelur 31 - umsókn um lóð
Mál 2205143 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn AMC wave ehf, dagsett 11. maí 2022, þar sem sótt er um einbýlishúsalóðina við Búðarmel 31 á Reyðarfirði. Jafnframt er sótt um lóðirnar við Búðarmel 27 og 29, gert er ráð fyrir að byggja tvö parhús á lóðunum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt deiliskipulagi fyrir Búðarmel eru lausar par- og raðhúsalóðir til úthlutunar og bendir umsækjanda á að skoða þá möguleika. Nefndin felur sviðsstjóra að ræða við lóðarumsækjendur.
-
10. 740 Naustahvammur 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2205119 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Graftar ehf., dagsett 10. maí 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar fyrirtækisins að Naustahvammi 20 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
11. 735 Karlsstaðir - Umsókn um byggingarheimild, skálavarðarhús
Mál 2205128 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn frá Ferðafélagi Fjarðamanna um uppsetningu skálavarðarhúss við Karlsstaði í Vöðlavík.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingarleyfi að uppfylltum jákvæðum umsögnum Minjastofnunar og annarra leyfisveitenda og felur byggingarfulltrúa frágang málsins.
-
12. 760 Sólheimar 9 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús
Mál 2205267 Allur ferill málsins
Sótt er um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Sólheimum 9 í Breiðdal.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingarheimild að uppfylltum skilyrðum byggingarleyfis og felur byggingarfulltrúa að fara yfir umsóknina.
-
13. 740 Egilsbraut 26 - umsókn um stöðuleyfi
Mál 2205216 Allur ferill málsins
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Hildibrand slf., dagsett 18. maí 2022, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir torgsöluhús á lóð fyrirtækisins við Egilsbraut 26 á Norðfirði. Sótt er um leyfi til að láta torgsöluhúsið standa til 5. september 2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfið.
-
14. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga formanns umhverfis- og skipulagsnefndar að nefndarmönnum í fjallskilanefnd.
Aðalmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir (formaður), Sléttu Reyðarfirði
Arnór Ari Sigurðsson (varaformaður), Þverhamri Breiðdal
Marzibil Erlendsdóttir, Dalatanga Mjóafirði
Sunna Júlía Þórðardóttir, Skorrastað 4 Norðfirði
Steinn Björnsson Þernunesi, Fáskrúðsfirði
Varamenn
Sigurður Max Jónsson, Skjöldólfsstöðum Breiðdal
Arnar Ingi Ármannsson, Dölum Fáskrúðsfirði
Sigurður Borgar Arnaldsson, Þrastahlíð Breiðdalsvík
Þórhalla Ágústsdóttir, Hofi Norðfirði
Halldór Jóhannsson, Stóru-Breiðuvík Eskifirði
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tilnefndingu fulltrúa fjallskilanefndar og vísar staðfestingu til bæjarstjórnar.
-
15. Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál.
Mál 2205257 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál. https://www.althingi.is/altext/152/s/0812.html
Lagt fram til kynningar.
-
16. 735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð
Mál 2201124 Allur ferill málsins
Tekin fyrir lóðarumsókn fyrir geymsluhúsnæði að Dalbraut 10 en eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestaði afgreiðslu umsóknar lóðar þar sem deiliskipulag var ekki tilbúið en nú hefur það verið staðfest.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu til bæjarráðs.