Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 2

4. júlí 2022, kl. 16:00 til 18:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Jörgen Sveinn Þorvarðarson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 758 liður 17

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 4. júlí tekin til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar með umboði

    bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.

Dagskrá

  1. 1. 740 Sæbakki 19 og 21 - Umsókn um lóð

    Mál 2205084 Allur ferill málsins

    Grenndarkynningu vegna sameiningu lóða nr 19-21 við Sæbakka í eina lóð er liðinn. Athugasemdir bárust vegna fyrirhugaðar sameiningu lóðanna og lóðarúthlutunar og byggingar þar. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að athugasemdir er bárust séu ekki þess eðlis að hafna beri sameiningu lóðanna 19 og 21 við Sæbakka í eina lóð og samþykkir því sameiningu lóðanna fyrir sitt leiti. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til Búðinga ehf og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  2. 2. 740 Naustahvammur 54 - Umsókn um lóð

    Mál 2203063 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Heimis Snæs Gylfasonar, dagsett 9. mars 2022, þar sem sótt er um lóðina við Naustahvamm 54 undir atvinnuhúsnæði. Jafnframt lögð fram drög að lóðarblaði með breyttri stærð lóðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti breytingu á lóðarblaði og að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  3. 3. Hafnarbraut 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2206062 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Nestaks ehf, dagsett 15. júní 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu sem er 197,4 m2 parhús á lóð við Hafnarbraut 15 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  4. 4. 750 Hafnargata 5 - Umsókn um byggingarleyfi, byggja anddyri

    Mál 2205253 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 20. maí 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu sem er 30,3 m2 anddyri á lóð við Hafnargötu 5 á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. 740 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 36 til 38

    Mál 2206125 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Hrafnshóls ehf dagsett 29 júní 2022, þar er sótt um lóðir við Hafnarbraut 36 og 38, Norðfirði. Sótt er um leyfi til byggja tvö fjölbýlishús, með átta íbúðum hvort, samtals 16 íbúðir.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðunum og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins gerir athugasemdir við úthlutun lóðanna þar sem þær eru á hættusvæði jafnframt er gerð athugasemd við kynningarferli á lausum lóðum á hættusvæði.

  6. 6. 730 Melbrekka 7 - Umsókn um lóð

    Mál 2205189 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Orteka ehf, dagsett 16. maí 2022, þar sem sótt er um lóðina Melbrekku 7 undir einbýlishús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  7. 7. 730 Melbrekka 9 - Umsókn um lóð

    Mál 2205191 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Orteka ehf, dagsett 16. maí 2022, þar sem sótt er um lóðina Melbrekku 9 undir einbýlishús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  8. 8. Bleiksárhlíð 56 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2207007 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Eskju hf, dagsett 1. júlí 2022, þar sem sótt er um breytingu á notkun úr hjúkrunarheimili yfir í verbúð. Jafnframt er sótt um leyfi til breytinga innanhúss sem fela í sér fjölgun gistirýma úr 18 í allt að 37. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  9. 9. 740 Þiljuvellir Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2207012 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn frá Síldarvinnslunni hf, dagsett 1. júlí 2022, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar og endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar að Þiljuvöllum 4 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að stækka lóðina og að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  10. 10. 740 Sólbakki 2-6, umsókn um lóð

    Mál 2205203 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn AMC wave ehf, dagsett 17. maí 2022, þar sem sótt er um lóðina við Sólbakka 2-6 undir raðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  11. 11. 740 Blómsturvellir 36 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2205266 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Deirdre Anne Kresfelder, dagsett 24. maí 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar að Blómstuvöllum 36 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  12. 12. Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Björgunum í Reyðarfirði

    Mál 2109139 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju umsókn GYG ehf fyrir hönd óstofnaðs fyrirtækis þar sem óskað er eftir að fyrirtækið verði rétthafi í námu sem staðsett verður við Björgin vestan Mjóeyrarhafnar í Reyðarfirði. umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókn GYG ehf þar sem náman verður nýtt af Fjarðabyggð og Fjarðabyggðarhöfnum í þær miklu framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru. Byggingarfulltrúa falið að svara erindinu.

  13. 13. 750 - Umsókn um framkvæmdaleyfi Eyri náma

    Mál 2206123 Allur ferill málsins

    Sótt er um framkvæmdarleyfi til efnistöku úr malarnámu við Eyri merkt samkvæmt Aðalskipulagi E 35. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi er tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  14. 14. Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði

    Mál 1908051 Allur ferill málsins

    Fram lagt erindi frá Ívari Ingimarssyni um lausagöngu búfjár í Stöðvarfirði.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur móttekið erindið en mun ekki aðhafast frekar vegna málsins.

  15. 15. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022

    Mál 2112033 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar niðurstöður umsókna í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar úthlutun styrkjanna og felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram.

  16. 16. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir Austurland

    Mál 2207003 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og skipulgsnefnd fagnar erindi frá Austurbrú um gerð sameiginlegrar svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs fyrir Austurland. Samhliða er óskað eftir því að sveitarfélögin skipi hvert um sig tvo fulltrúa í faghóp/verkefnisstjórn sem fylgir verkefninu eftir. Lagt er upp með að annar fulltrúinn gæti verið fulltrúi í þeirri fagnefnd sveitarfélagsins sem fer með málefni úrgangsmála og hringrásahagkerfis og hinn fulltrúinn gæti verið starfsmaður sem sinnir málaflokknum.

  17. 17. Ársfundur náttúruverndarnefnda

    Mál 2206132 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar fundarboð á ársfund náttúruverndarnefnda sem haldinn verður þann 10. nóvember næstkomandi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að sækja fundinn.

  18. 18. Endurskoðun samþykktar um bygginganefnd í Fjarðabyggð

    Mál 2206094 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar umhverfis- og skipulagsnefndar drögum að uppfærðri samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð vegna breytinga á samþykktum sveitarfélagsins. Samþykktin var upphaflega samþykkt árið 2013, 820/2013.

  19. 19. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022

    Mál 2202061 Allur ferill málsins

    lögð fram til kynningar Fundargerð 168. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands

  20. 20. 755 Sævarendi 2 - Beiðni um stækkun lóðar og framkvæmdaleyfi

    Mál 2204117 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Malbikunarstöð Austurlands ehf, dagsett 20. apríl 2022, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar og endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar að Sævarenda 2 á Stöðvarfirði. Fram hefur farið grenndarkynning og einnig hefur farið fram fornleifaskráning á svæðinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að stækka lóðina og að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.