Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir Austurland

Mál 2207003 Fyrst á dagskrá 4. júlí 2022, síðast 25. ágúst 2022. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.

Í heiti málsins: Umhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 2 liður 16

    Umhverfis- og skipulgsnefnd fagnar erindi frá Austurbrú um gerð sameiginlegrar svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs fyrir Austurland. Samhliða er óskað eftir því að sveitarfélögin skipi hvert um sig tvo fulltrúa í faghóp/verkefnisstjórn sem fylgir verkefninu eftir. Lagt er upp með að annar fulltrúinn gæti verið fulltrúi í þeirri fagnefnd sveitarfélagsins sem fer með málefni úrgangsmála og hringrásahagkerfis og hinn fulltrúinn gæti verið starfsmaður sem sinnir málaflokknum.

  2. Bæjarráð, fundur 758 liður 14

    Tekið fyrir erindi Austurbrúar um gerð svæðisskipulagsáætlunar um úrgangsmál á Austurlandi. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur fjallað um máli.

    Bæjarráð skipar Birki Snæ Guðjónsson nefndarmann í umhverfis- og skipulagsnefnd og Írisi Dögg Aradóttur verkefnisstjóra sem fulltrúa Fjarðabyggðar í nefnd sem fjalli um svæðisskipulagsáætlun um úrgangsmál á Austurlandi.

  3. Bæjarráð, fundur 758 liður 17.16

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 2“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 336 liður 2.14

    Fundargerðin „Bæjarráð - 758“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is