Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

740 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 36 til 38

Mál 2206125 Fyrst á dagskrá 4. júlí 2022, síðast 25. ágúst 2022. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.

Í heiti málsins: HafnirLóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 2 liður 5

    Lögð fram lóðarumsókn Hrafnshóls ehf dagsett 29 júní 2022, þar er sótt um lóðir við Hafnarbraut 36 og 38, Norðfirði. Sótt er um leyfi til byggja tvö fjölbýlishús, með átta íbúðum hvort, samtals 16 íbúðir.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðunum og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins gerir athugasemdir við úthlutun lóðanna þar sem þær eru á hættusvæði jafnframt er gerð athugasemd við kynningarferli á lausum lóðum á hættusvæði.

  2. Bæjarráð, fundur 758 liður 3

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn um lóðir við Hafnarbraut 36 og 38, Norðfirði. Sótt er um leyfi til byggja tvö fjölbýlishús, með átta íbúðum hvort, samtals 16 íbúðir.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðanna að Hafnarbraut 36 og 38.

    Bókun fulltrúa Framsóknarflokks og Fjarðalista.

    Lesa alla bókunina (186 orð til viðbótar)

    Vegna úthlutunar lóðanna Hafnarbraut 36 og 38 og bókunar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Umhverfis- og skipulagsnefnd þaraflútandi vilja fulltrúar Framsóknar og Fjarðalista árétta eftirfarandi. Á 304. fundi Eigna- skipulags og umhverfisnefndar (ESU) Fjarðabyggðar sem haldinn var þann 24.janúar 2022 var tillaga að lóðarskipulagi í Krossskálavík við áðurnefndar lóðir samþykkt og jafnframt samþykkt að úthluta lóðum í samræmi við það (málsnúmer 2102027). Var það í samræmi við fyrri umræður í nefndinni en þegar ofanflóðavarnir hafa risið þá má þétta byggð undir þeim eins og í tilfelli áðurnefndra lóða sem standa undir Tröllagilsvarnargarðinum. Tillagan um þessar lóðir var samþykkt einróma í ESU og eins á bæjarstjórnarfundi nr.326 sem haldinn var 3.febrúar 2022.

    Jafnframt voru þær á lista yfir lóðir á heimasíðu Fjarðabyggðar. Í ljósi þessa er bókun annars fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Umhverfis- og skipulagsnefnd því afar sérkennileg og ekki ljóst hvert hann er að fara með henni. Mikil þörf er á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í hverfum Fjarðabyggðar og fagnaðarefni að sjá og finna áhuga á slíkri uppbyggingu nú upp á síðkastið og munu Framsókn og Fjarðalistinn áfram leita leiða til að efla þann áhuga Fjarðabyggð allri til góða í framtíðinni.

  3. Bæjarráð, fundur 758 liður 17.5

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 2“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 336 liður 2.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 758“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is