NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 1
24. júní 2022, kl. 14:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Birta Sæmundsdóttir, varaformaður
- Margrét Sigfúsdóttir, varamaður
- Bjarki Ingason, aðalmaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 756 liður 14
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 24. júní lögð fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 335 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 24. júní sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar
Mál 2205296 Allur ferill málsins
Framlagt erindisbréf fyrir stjórn menningarstofu og safnstofnunar til kynningar fyrir nefndina.
Farið yfir og kynnt.
-
2. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Tilnefning í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga. Bæjarstjórn skipar aðal- og varafulltrúa í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga samkvæmt stofnsamningi og eftir tilnefningu stjórnar menningarstofu og safnastofnunar.
Varaformaður lagðir fram tillögu um tilnefningu fulltrúa í stjórn.
Aðalmaður: Jón Björn Hákonarson
Varamaður: Gunnar Jónsson
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar vísar staðfestingu til bæjarstjórnar.
-
3. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 fulltrúar í stjórn Sjóminjasafns Austurlands
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Tilnefning í stjórn Sjóminjasafns Austurlands. Bæjarstjórn skipar tvo fulltrúa í stjórn Sjóminjasafns Austurlands samkvæmt stofnsamningi þess og eftir tilnefningu stjórnar menningarstofu og safnastofnunar.
Varaformaður lagði fram tillögu um tilnefndingu í stjórnina.
Stjórn Sjóminjasafns Austurlands:
Aðalmenn
Gunnar Jónsson
Kamma Dögg Gísladóttir
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks tilnefna Jens Garðar Helgason til setu í stjórn á grundvelli hlutfallskosningar.
Stjórnin menningarstofu og safnastofnunar vísar tillögum að tilnefningu til bæjarstjórnar.
-
4. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Tilnefning í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Bæjarstjórn skipar þrjá fulltrúa, og þrjá til vara, í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands að fenginni tilnefningu stjórnar menningarstofu og safnastofnunar.
Varaformaður lagði fram tillögu að tilnefningu fulltrúa í stjórnina.
Aðalmenn
Gunnar Jónsson
Snorri Styrkársson
Birta Sæmundsdóttir
Varamenn
Bjarki Ingason
Benedikt Jónsson
Guðbjörg Sandra Óðinsdóttir Hjelm
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks tilnefna Guðbjörgu Söndru Óðinsdóttur Hjelm til setu aðalmanns í stjórn á grundvelli hlutfallskosningar.
Stjórnin menningarstofu og safnastofnunar vísar tillögum að tilnefningu til bæjarstjórnar.
-
5. Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað frá starfshópi um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins.
Tekið fyrir að nýju í nefndinni með haustinu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð.
-
6. Verkefni menningarstofu 2022
Mál 2109214 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar minnisblað forstöðumanns menningarstofu um verkefni sumarsins.
-
7. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2022
Mál 2204141 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað forstöðumanns safnastofnunar um verkefni og stöðu starfsemi safnastofnunar sumarið 2022.
-
8. Menningar- og listahátíðin innsævi
Mál 2206085 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar bæklingur um dagskrá Innsævis, menningar-og listahátíðar í Fjarðabyggð á vegum Menningarstofu.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá Innsævis og hvetur alla til þess að njóta þeirrar fjölbreytni sem þar er boðið uppá.