Veggmyndir á brúm á Fáskrúðsfirði
Mál 2205123 Fyrst á dagskrá 12. maí 2022, síðast 24. maí 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Fáskrúðsfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 312 liður 13
Lagt fram erindi Menningarmiðstöðvar Fjarðabyggðar, dagsett 5. maí 2022, þar sem óskað eftir heimild til að myndskreyta brú austan við Hamarsgötu 14 á Fáskrúðsfirði. Fyrir liggur styrkur til verkefnis frá menningar og nýsköpunarnefnd auk þess sem verkefnið er hugsað sem liður í INNSÆVI - menningar og listahátíð Fjarðabyggðar 2022.
Einnig kæmi til greina að listamaðurinn sem vinna á verkið myndi, með hjálp frá starfsfólki skapandi sumarstarfa, hressa upp á myndir á öðrum brúarveggjum á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtakinu og samþykkir að brúin verði myndskreytt. Nefndin samþykkir jafnframt að myndir á öðrum brúm á Fáskrúðsfirði verði lagfærðar með aðstoð starfsfólks skapandi sumarstarfa. Nefndin felur framkvæmdasviði að kanna ástand brúnna.
-
Bæjarráð, fundur 753 liður 18.13
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 312“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 332 liður 2.13
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 312“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.