NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 307
7. mars 2022, kl. 16:00 til 16:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 745 liður 18
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. mars lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 329 liður 6
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Mál 2002039 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð, dagsett 23. febrúar 2022, frá opnun tilboða í viðbyggingu leikskólans Dalborgar en þrír aðilar gera tilboð í verkið í 7 tilboðum. Bæjarráð hefur vísað tilboðum til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og falið framkvæmdasviði að yfirfara tilboðin og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
2. 740 Kirkjuból, vinnubúðir - Umsókn byggingarleyfi, niðurrif
Mál 2203034 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn BM Vallá ehf, dagsett 3. mars 2022, þar sem sótt er um að tímabundin mannvirki fyrirtækisins sem stóðu við Kirkjuból í Norðfirði verði fellt út úr fasteignaskrá Þjóðskrár. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
3. 730 Búðargata 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2202176 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Sævars Eiríks Jónssonar, dagsett 23. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Búðargötu 5 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
4. 735 Strandgata 61 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2202149 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn SA ehf. f.h. KAOZ Adventure ehf., dagsett 17. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings að Strandgötu 61 á Eskifirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
5. 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2203021 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 1. mars 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings hafnarinnar að Naustahvammi 76 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað og deiliskipulag.
-
6. 750 Búðavegur 48 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2202169 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Fylkis ehf, dagsett 22. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar fyrirtækisins að Búðavegi 48 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
7. 735 Strandgata 98b - Umsókn um lóð
Mál 2101035 Allur ferill málsins
Lagt fram að nýju erindi Péturs Karls Kristinssonar, dagsett 5. janúar 2021, þar sem óskað er efir lóð við hlið Strandgötu 98a undir Friðþjófshús sem nú stendur á lóðinni við Strandgötu 88 á Eskifirði. Breyting á deiliskipulagi Hlíðarenda þar sem gert er ráð fyrir þjónustu- og íbúðarhúsalóð við Strandgötu 98b hefur verið samþykkt.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
8. 740 Naustahvammur 76 - Umsókn um lóð
Mál 2203022 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Nestaks ehf, dagsett 1. mars 2022, þar sem sótt er um norð-austanhorn lóðarinnar við Naustahvamm 76 fyrir 1.000 m2 iðnaðarhús með 10 iðnaðarbilum. Umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og vísar umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar.
-
9. 740 Kirkjubólseyrar 2 - Umsókn um lóð
Mál 2202200 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Valgeirs Kristjáns Guðmundssonar, dagsett 28. febrúar 2022, þar sem sótt er um lóð undir fjárhús við Kirkjubólseyri 2 í Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
10. 740 Strandgata - Minningarreitur
Mál 1806180 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Síldarvinnslunnar hf, dagsett 23. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir heimild til að setja upp minningarreit SVN í samræmi við hönnunargögn. Á fundi sínum 7. júlí 2018 samþykkti eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðsetningu og uppsetningu fyrirhugaðs minningarreits.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar, líkt og áður, frumkvæði Síldarvinnslunnar og samþykkir gerð minningarreits í samræmi við framlögð hönnunargögn.