Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 306

24. febrúar 2022, kl. 16:00 til 16:55, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 744 liður 18

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. febrúar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 328 liður 3

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. febrúar að undanskildum 10. lið fundargerðar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Græn Skref Fjb.

    Mál 2112054 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstýru, dagsett 18. febrúar 2022, er varðar innleiðingu grænna skrefa í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar áfanganum og felur umhverfis- og skipulagssviði að halda áfram með innleiðinguna samkvæmt framlögðu minnisblaði.

  2. 2. Deiliskipulag Hlíðarenda - breyting, safnasvæði

    Mál 2006072 Allur ferill málsins

    Lögð fram að eftir auglýsingartíma tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir frá, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og HAUST liggja fyrir án athugasemda.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti breytingu deiliskipulags Hlíðarenda.

    Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  3. 3. 735 Strandgata 52 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging

    Mál 2202126 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarheimildarumsókn Ríkiseigna. dagsett 14. febrúar 2022, þar sem sótt er um leyfi til að reisa viðbyggingu við austurenda húsnæðis fyrirtækisins að Strandgötu 52 á Eskifirði. Viðbyggingin hýsir stiga milli hæða til þæginda og öryggis fyrir starfsemina í húsinu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarheimild.

  4. 4. 740 Blómsturvellir 51 - Umsókn um lóð

    Mál 2201193 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Hafþórs Eiríkssonar, dagsett 31. janúar 2022, þar sem sótt er um lóðina við Blómsturvelli 51 á Norðfirði undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  5. 5. 740 Leiruvegur - Umsókn um lóð við smábátahöfn

    Mál 2202136 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Nes7 ehf, dagsett 9. janúar 2022, þar sem sótt er um lóð innan við smábátahöfnina Norðfirði fyrir 559 m2 iðnaðarhús með 7-10 iðnaðarbilum. Umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og vísar umsókninni til umsagnar hafnarstjórnar.

  6. 6. 760 Ásvegur 30 - Umsókn um lóð

    Mál 2202137 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Elísar Péturs Elíssonar, dagsett 16. febrúar 2022, þar sem sótt er um lóðina við Ásveg 30 á Breiðdalsvík undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  7. 7. 760 Ásvegur 16 - Umsókn um lóð

    Mál 2202138 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Elísar Péturs Elíssonar, dagsett 16. febrúar 2022, þar sem sótt er um lóðina við Ásveg 16 á Breiðdalsvík undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  8. 8. 750 Hlíðargata 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2202075 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Hrafnhildar Hallsdóttur, dagsett 7. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Hlíðargötu 20 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  9. 9. 750 Hlíðargata 40 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2202100 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn dánarbús Þórs Sigurðarsonar, dagsett 9. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar dánarbúsins að Hlíðargötu 40 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  10. 10. 750 Hafnargata - Kæra vegna útgáfu byggingarleyfis

    Mál 2108106 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna máls 138/2021 þar sem kærð var samþykkt bæjarstjórnar á afgreiðsla eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar og samþykk á umsókn Loðnuvinnslunnar hf. um byggingarleyfi vegna viðbyggingar og breytinga innan húss að Hafnargötu 32-34 á Fáskrúðsfirði. Kröfu um ógildingu á samþykkt á byggingarleyfi er hafnað.

  11. 11. Göngu- og hjólastígur á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar

    Mál 2108093 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur að göngu- og hjólastíg milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna kostnaðaráætlun vegna göngu- og hjólastígs. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að leita umsagna viðeigandi stofnanna vegna legu göngu- og hjólastígs.

  12. 12. Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar

    Mál 2202006 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Jafnréttisteymis og íþróttakennara Verkmenntaskóla Austurlands, dagsett 1. febrúar 2022, er varðar íþróttamannvirki á Norðfirði. Bæjarráð hefur vísað bréfinu til félagsmálanefndar, eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar, til umfjöllunar og skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2023.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar ábendinguna og fyrir að vekja athygli á málinu. Nefndin felur jafnframt sviðsstjóra framkvæmdasviðs að kanna úrræði sem í boði eru til að koma á móts við kröfur um ókyngreinda búningsklefa og salerni í stofnunum Fjarðabyggðar. Nefndin vísar erindinu jafnframt til umfjöllunar í ungmennaráði.