760 Ásvegur 30 - Umsókn um lóð
Mál 2202137 Fyrst á dagskrá 24. febrúar 2022, síðast 3. mars 2022. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 306 liður 6
Lögð fram lóðarumsókn Elísar Péturs Elíssonar, dagsett 16. febrúar 2022, þar sem sótt er um lóðina við Ásveg 30 á Breiðdalsvík undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
Bæjarráð, fundur 744 liður 16
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn um lóðina við Ásveg 30 á Breiðdalsvík undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
Bæjarráð, fundur 744 liður 18.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 306“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 328 liður 1.16
Fundargerðin „Bæjarráð - 744“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 328 liður 3.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 306“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.