Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Endurskoðun á hámarkshraða á Breiðdalsvík

Mál 2204046 Fyrst á dagskrá 25. apríl 2022, síðast 5. maí 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Breiðdalsvík og Breiðdalur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 310 liður 14

    Lagt fram erindi Helgu Rakelar Arnardóttur, dagsett 5. apríl 2022, varðandi endurskoðun á hámarkshraða á Breiðdalsvík. Bent er á að merkingar vegna hámarkshraða vanti þó gert sé ráð fyrir 40 km/klst. hámarkshraða, þá er lagt til að hámarkshraði í verði lækkaður í 20 til 25 km/klst. í íbúðargötum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að koma upp merkingum vegna hámarshraða í samræmi við umferðarsamþykkt á Breiðdalsvík en innan þéttbýlis er gert ráð fyrir 40 km/klst. annarsstaðar en frá Selnesi að Sólvöllum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Nefndin mun taka ábendingar til athugunar við næstu endurskoðun umferðarsamþykktar.

  2. Bæjarráð, fundur 752 liður 11.14

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 310“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 331 liður 4.14

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 310“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is