NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 45
25. apríl 2022, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Birta Sæmundsdóttir, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Bjarki Ingason, varamaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Magnea María Jónudóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 752 liður 10
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 25. apríl lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 331 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 25. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Auglýsingar Fjarðabyggðar - Sumar 2022
Mál 2204136 Allur ferill málsins
Upplýsingafulltrúi sat þennan lið fundarins og fór yfir verkefni sumarsins 2022. Minnisblað lagt fram til kynningar.
-
2. Verkefni menningarstofu 2022
Mál 2109214 Allur ferill málsins
Forstöðumaður Menningarstofu sat þennan lið fundarins og kynnti helstu verkefni sumarsins. Minnisblað lagt fram til kynningar.
-
3. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2022
Mál 2204141 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað forstöðumanns Safnastofnunar um starfsemina sumarið 2022.
-
4. Verkefni atvinnu- og þróunarstjóra 2022
Mál 2204127 Allur ferill málsins
Atvinnu- og þróunarstjóri kynnti helstu verkefni á árinu 2022. Minnisblað lagt fram til kynningar.
-
5. Viðgerð og endurbætur á Valhöll
Mál 2203079 Allur ferill málsins
Erindi frá Kvikmyndasýningarfélagi Austurlands og Vinum Valhallar á Eskifirði, varðandi viðhald á Valhöll Eskifirði í tengslum við fjáröflun vegna kaupa á sýningarkerfi. Bæjarráð vísaði erindi til framkvæmdasviðs til úrvinnslu en á áætlun ársins er gert ráð fyrir viðhaldi á húsnæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdasviði verður farið í að lagfæra þak hússins á árinu.
-
6. Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar
Mál 2006128 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað vegna samnings við Bókaútgáfuna Hóla vegna ritunar á sögu Fáskrúðsfjarðar. Bæjarráð hefur samþykkt að saga Fáskrúðsfjarðar verði gefin út á árinu 2022 og bæjarstjóri hefur undirritað samning um útgáfu hennar.
-
7. Svæðisskipulagsnefnd 2021
Mál 2102084 Allur ferill málsins
Lögð fram kynning á svæðisskipulagi Austurlands. Skipulagið var í umsagnarferli fram til 21. apríl.