Öldungaráð, fundur 4
15. desember 2021, kl. 14:00 til 15:00, Melgerði 13 - Salur eldri borgara Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Guðrún Lilja Magnúsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Guðrún Pétursdóttir, aðalmaður
- Jórunn Bjarnadóttir, aðalmaður
- Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, aðalmaður
- Egill Þórólfsson, varamaður
Starfsmenn
- Guðrún Lilja Magnúsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Félagsmálanefnd, fundur 150 liður 4
Fundargerð öldungaráðs frá 14.desember lögð fram og samþykkt samhljóða.
Bæjarráð, fundur 743 liður 17
Fundargerð öldungaráðs frá 14. desember lögð fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn, fundur 327 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs frá 14. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara
Mál 2112083 Allur ferill málsins
Staða á húsnæði félaga eldriborgara rædd. Jón Grétar Margeirsson, framkvæmdasviði mætti sem gestur og kynnti stöðuna á hverjum stað.
-
2. Hafnargjöld fyrir eldri borgara
Mál 2006145 Allur ferill málsins
Erindi Gunnars Geirs Kristjánssonar er varðar hafnargjöld eldri borgara í Fjarðabyggð rædd. Ráðið felur starfsmanni að senda bréfritara bréf til að þakka fyrir erindið. Málinu vísað til hafnarstjórnar.
-
3. Erindisbréf öldungaráðs
Mál 1805131 Allur ferill málsins
Rætt um fyrirkomulag funda árið 2022.
Sett niður skipulag funda fram á vorið. Næstu fundir verða á eftirfarandi dagsetningum.
24.janúar
28.febrúar
21. mars
25. apríl
Formaður ráðsins er Einar Már Sigurðsson (L-listi), aðrir nefndarmenn eru: Pálína Margeirsdóttir (B-listi) og Dýrunn Pála Skaftadóttir (D-listi).
Varamenn þeirra eru Sigurður Ólafsson (L-listi), Elsa Guðjónsdóttir (B-listi) og Rúnar Már Gunnarsson (M-listi).
Jórunn Bjarnadóttir, Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir og Egill Þórólfsson verða aðalmenn félaga eldri borgara í ráðinu.
Þórarinn Viðfjörð Guðnason, Unnur Björgvinsdóttir og Þórormur Óskarsson verða varamenn félaga eldri borgara í ráðinu.
Guðrúnar Pétursdóttur er fulltrúi HSA, en varamaður hennar verður Bryndís Guðmundsdóttir.
-
4. Umsóknarstyrkur að efla félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-19
Mál 2104009 Allur ferill málsins
Jórunn Bjarnadóttir lagði fyrir bréf frá Landsambandi Eldri borgara.
Rætt var um hvort sveitarfélagið hafi sótt um Covid styrk vegna félagsstarfs eldriborgarara sem auglýstur var. Starfsmaður ráðsins var beðinn um að taka saman skýrslu um hvort hafi verið sótt um styrkinn, upphæð hans og hvað var gert við hann.