Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirÖldungaráð

Öldungaráð, fundur 3

4. febrúar 2020, kl. 10:00 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Guðrún Lilja Magnúsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hlíf Bryndís Herbjörnsdóttir, embættismaður
  • Jórunn Bjarnadóttir, embættismaður
  • Sigurður Stefán Baldvinsson, embættismaður
  • Ingigerður Jónsdóttir, embættismaður
  • Maren Sigurlaug Ármannsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 667 liður 23

    Fundargerð öldungaráðs, nr. 3 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 294 liður 11

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð öldungaráðs frá 4. febrúar sl., staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði

    Mál 1806076 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. júní 2018 um ný og breytt ákvæði um notendaráð á grundvelli laga sem tóku gildi 1. október 2018. Kynnt fyrir Öldungaráði.

  2. 2. Framtíðarþing um farsæla öldrun - Beiðni um styrk

    Mál 1908055 Allur ferill málsins

    Beiðni frá Félagi eldri borgara á Fljótsdalshéraði um styrk til að halda málþing um farsæla öldrun í samvinnu við Landssamband eldri borgara og Öldrunarráð var tekin fyrir á 124. fundi félagsmálanefndar 20. ágúst 2019. Samþykktur var 100.000 kr. styrkur og eldri borgarar í Fjarðabyggð hvattir til þátttöku. Vísað til kynningar í Öldungaráði Fjarðabyggðar. Kynnt í Öldungaráði.

  3. 3. Starfsáætlun öldungaráðs 2020

    Mál 1912104 Allur ferill málsins

    Rætt um hvað Öldrunarráð er, hverjir eru aðilar og hvort Fjarðabyggð ætti að vera aðili að Öldrunarráði. Einar Már og Dýrunn ætla að taka að sér að skoða þetta fyrir hönd Öldungaráðs. Starfsáætlun Öldungaráðs rædd og bent á mikilvægi þess að tryggja tengsl milli félaga eldri borgara í Fjarðabyggð.