Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 667

15. júní 2020, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 294 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15.júní sl. utan liðar 13, kauptilboð í Egilsbraut 6, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2020 - Trúnaðarmál

    Mál 2004074 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - apríl auk launakostnaðar og skatttekna janúar - maí 2020. Auk þess er samantekt fjármálastjóra um tekjur Fjarðabyggðar á árinu 2020.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024

    Mál 2005017 Allur ferill málsins

    Framlögð samantekt um vinnu nefnda, sviðsstjóra og starfsmanna Fjarðabyggðar vegna hugmynda um breytingar á þjónustu Fjarðabyggðar á árinu 2021 í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um gerð fjárhagsáætlunar. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021. Bæjarráð tekur afstöðu til rammaúthlutunar fyrir lok júnímánaðar sem verður úthlutun í ágúst eða september.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021

    Mál 2005025 Allur ferill málsins

    Lögð fram minnisblöð vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2021. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021

    Mál 2005020 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað fræðslunefndar vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2021. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021

    Mál 2005022 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað félagsmálanefndar vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2021. Nefndin samþykkir tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2021

    Mál 2005021 Allur ferill málsins

    Lögð fram minnisblöð vegna starfs- og fjárhagsáætlunar barnaverndar. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021

    Mál 2005023 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir fyrirliggjandi minnisblað og vísar til bæjarráðs. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  8. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021

    Mál 2005019 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað bæjarritara um fjárhagsáætlun ársins 2021, eftir umfjöllun í menningar- og nýsköpunarnefnd. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  9. 9. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021

    Mál 2005018 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna fjárhagsáætlunar 2021 og framkvæmdaáætlanir sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og sviðsstjórar framkvæmdasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs hafa farið yfir fjárhagsáætlanirnar fyrir árið 2021. Nefndin hefur samþykkt áætlanirnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  10. 10. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021

    Mál 2005026 Allur ferill málsins

    Lögð fram fjárfestingaráætlun hafnarsjóðs í tengslum við starfs- og fjárhagsáætlun 2021. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  11. 11. Starfshópur um tjaldsvæði

    Mál 2004044 Allur ferill málsins

    Lagðar fram fundargerðir og niðurstaða starfshóps um fyrirkomulag tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð.

    Starfshópurinn samþykkir að lögð verði áhersla að hefja framkvæmdir á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Framkvæmdum á Eskifirði yrði flýtt eins og kostur er í framhaldi. Fyrirhugaðar ofanflóðaframkvæmdir í Neskaupstað kalla á að tjaldsvæðið verði flutt. Leitað verður samkomulags við Ofanflóðasjóð um sambærilegt tjaldsvæði við Strandgötu 62, vestan við byggðina. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á árinu 2021.

    Starfshópurinn vísar tillögum til bæjarráðs ásamt meðfylgjandi minnisblaði og fundargerðum starfshópsins.

    Bæjarráð vísar tillögum starfshópsins til menningar- og nýsköpunarnefndar til áframhaldandi vinnslu.

  12. 12. Tölvur í skólum Fjarðabyggðar

    Mál 2005112 Allur ferill málsins

    Minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs, fræðslustjóra og fjármálastjóra vegna fjármögnunar á tölvukaupum fyrir skólastofnanir.

    Bæjarráð samþykkir að farið verði í verðkönnun með kaup á tölvubúnaði og málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  13. 13. Kauptilboð í Egilsbraut 6 Neskaupstað

    Mál 2005095 Allur ferill málsins

    Við umfjöllun og afgreiðslu liðar vék Rúnar Már Gunnarsson af fundi.

    Framlagt gagntilboð í Egilsbraut 6 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir að taka gagntilboði og felur bæjarstjóra undirritun skjala tengdum sölunni.

  14. 14. Ársfundur Austurbrúar 2020

    Mál 2006054 Allur ferill málsins

    Ársfundur Austurbrúar verður haldinn 23. júní nk. í Neskaupstað.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.

  15. 15. Ísland ljóstengt: Aukaúthlutun 2020 og 2021 vegna ljósleiðaralagningar

    Mál 2005057 Allur ferill málsins

    Framlögð drög samninga um úthlutun Ísland ljóstengt aukaúthlutun 2020 og framlög í ljósleiðaraverkefni Fjarðabyggðar. Undirritun samninga fór fram sl. föstudag en veittar voru 2,5 m.kr. auk 2,4 m.kr. sem byggðastyrks. Jafnframt voru veittar til Neyðarlínunnar ohf. styrkir til ljósleiðaratengingar milli Brekku og Dalatanga ásamt hringtengingu fjarskiptainnviða í Fjarðabyggð. Bæjarráð þakkar veitta styrki en þeir skipta gríðarlega miklu máli til að efla öryggi bæði á landi og sjó.

  16. 16. Krafa um miskabætur - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1903195 Allur ferill málsins

    Minnisblað bæjarstjóra lagt fram sem trúnaðarmál á fundinum.

    Bæjarráð hafnar bótaábyrgð.

  17. 17. Krafa um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð og aðgang að upplysingum - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2006039 Allur ferill málsins

    Krafa um bætur vegna ráðningar í starf. Bréf lögmanns ásamt álitsgerð, lagt fram á fundinum sem trúnaðarmál.

    Bæjarráð hafnar bótaábyrgð. Fjármálastjóra falið í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs að veita umbeðnar upplýsingar.

  18. 18. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 262

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 262, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 18.1 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
    2. 18.2 Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir1804020
    3. 18.3 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    4. 18.4 Aðgerðir 2020 - umhverfisátak2002003
    5. 18.5 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    6. 18.6 C.9 Byggðaáætlun1903034
    7. 18.7 730 Heiðarvegur 19 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2003094
  19. 19. Íþrótta- og tómstundanefnd - 75

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 75 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 19.1 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
    2. 19.2 Uppbygging á æfingasvæði á Eskifirði
    3. 19.3 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
  20. 20. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 27 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 20.1 Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun2002099
    2. 20.2 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    3. 20.3 Safnanefnd - 152006001F
  21. 21. Safnanefnd - 15

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 15 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 21.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20212005019
    2. 21.2 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.1812130
    3. 21.3 Stríðsárasafn á Reyðarfirði - Grundvöllurinn1906027
    4. 21.4 Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.1806162
    5. 21.5 Egilsbraut 4 - skjalasafn1907058
    6. 21.6 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20202002186
    7. 21.7 Þjónustusamningur við eldri borgara á Reyðarfirði 20202006004
    8. 21.8 Þjónustusamningur við félag eldri borgarar í Neskaupstað 20202006005
    9. 21.9 Þjónustusamningur við eldri borgara á Eskifirði 20202006006
  22. 22. Félagsmálanefnd - 135

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 135 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 22.1 Ungt fólk - 8.-10.bekkur könnun2004161
    2. 22.2 Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (notendaráð), 838. mál2005163
    3. 22.3 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    4. 22.4 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
  23. 23. Öldungaráð - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs, nr. 3 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 23.1 Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði1806076
    2. 23.2 Framtíðarþing um farsæla öldrun - Beiðni um styrk1908055
    3. 23.3 Starfsáætlun öldungaráðs 20201912104
  24. 24. Barnaverndarfundargerðir 2020

    Mál 2003129 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 117 lögð fram til afgreiðslu.