NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 262
8. júní 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 667 liður 18
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 262, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 294 liður 3
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 8. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
Mál 2005018 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna fjárhagsáætlunar og framkvæmdaáætlanir sviðsstjóra framkvæmdasviðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og sviðsstjórar framkvæmdasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs fara yfir fjárhagsáætlanirnar fyrir árið 2021. Nefndin samþykkir áætlanir fyrir sitt leyti og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði.
-
2. Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir
Mál 1804020 Allur ferill málsins
Farið yfir skipulagsmál svæðisins og skilmála vegna þjónustuhúss.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjórum að kynna styrki sem veittir hafa verið til uppbyggingar ferðamannastaðanna, ásamt stöðu framkvæmda og kostanð.
-
3. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
Mál 2004009 Allur ferill málsins
Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd drögum að ferðamálastefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði auk tillögu um að meðal verkefna menningar- og nýsköpunarnefndar verði tjaldsvæði og áfangastaðir ferðamanna í Fjarðabyggð ásamt því að yfirstjórn þeirra verkefna verði falin stjórnsýslu- og þjónustusviði. Bæjarráð hefur staðfestt tillögur um tilfærslu yfirstjórnar tjaldsvæða og áfangastaða.
Bæjarráð hefur einnig samþykkt tillögu í minnisblaði um að skipa teymi á stjórnsýslu- og þjónustusviði sem í sitja forstöðumaður safnastofnunar, forstöðumaður menningarstofu, atvinnu- og þróunarstjóri og upplýsinga- og kynningarfulltrúi. Verkefni hópsins er að skoða og þróa hugmyndir um aðkomu skapandi sumarstarfa í samvinnu við verkefnastjóra skapandi sumarstarfa. Ferðamálastefnu vísað til kynningar í öllum fastanefndum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur mikilvægt að umhverfisvæn ferðaþjónusta verði hluti af ferðamálastefnunni.
-
4. Aðgerðir 2020 - umhverfisátak
Mál 2002003 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, tillögur í umhverfisátaki í dreifbýli 2020, dagsett 7. júní 2020. Lagt er upp með að aðstoða bændur við það að fá fargað úreltum tækjum og búnaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkomnar tillögur og felur umhverfis- og skipulagssviði að koma þeim til framkvæmda.
-
5. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2019-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna drögin áfram í samræmi við umræðu og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. C.9 Byggðaáætlun
Mál 1903034 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar og umsagnar, fyrsti hluti C9 verkefnisins, greining á hagrænum áhrifum friðlýsingar á byggðir.
-
7. 730 Heiðarvegur 19 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2003094 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Bjarka Franzsonar, dagsett 12. mars 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Heiðarvegi 19 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.