NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 263
15. júní 2020, kl. 16:00 til 18:25, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 668 liður 12
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 263 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 294 liður 4
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 15. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 735 - Deiliskipulag, Eskifjörður-miðbær
Mál 1502041 Allur ferill málsins
Auglýsingartími vegna deiliskipulagsins Eskifjörður-miðbær er liðinn. Engar athugasemdir bárust.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti deiliskipulagið Eskifjörður-miðbær. Uppdráttur, skýringaruppdráttur, greinagerð og umhverfisskýrsla, dagsett í mars 2020. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
2. 740 Naustahvammur 67-69, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Mál 2006013 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Naust 1 ? Norðfjarðarhöfn og nágrenni, dagsett 10. júní 2020. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar við Naustahvamm 67-69. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu deiliskipulags Naust 1 - Norðfjarðarhöfn og nágrenni. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
3. Deiliskipulag Hlíðarenda - óveruleg breyting, safnasvæði
Mál 2006072 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi hugsanlegar breytingar á deiliskipulagi Hlíðarenda og tekur til umfjöllunar að nýju ef þurfa þykir.
-
4. Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð
Mál 2006042 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gunnars Viðars Þórarinssonar, dagsett 8. júní 2020, þar sem sótt er um leyfi til að gera útlitsbreytingar á íbúðarhúsi hans að Mánagötu 3 á Reyðarfirði ásamt byggingu 55 fm og 223,6 rm bílskúrs og breytingar á lóð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt byggingu bílskúrs sambærilegum þeim sem áður var hafnað á 215. fundi nefndarinnar 1. október 2018 eftir grenndarkynningu. Útlitsbreytingar á húsi og breytingar á lóð voru samþykktar á sama fundi nefndarinnar. Nefndin felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að hafa samband við umsækjanda og fara yfir fyrri umfjöllun um byggingu bílskúrs á lóðinni.
-
5. 715 Mjóafjarðarvegur - byggingarleyfi, niðurrif olíutanks
Mál 2006065 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Olíudreifingar ehf, dagsett 11. júní 2020, þar sem sótt er um leyfi til að rífa og afskrá úr fasteignamati olíugeymi fyrirtækisins í Mjóafirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir niðurrif og afskráningu.
-
6. 730 Hafnargata 1 - byggingarleyfi, uppsetning á skilti
Mál 2006053 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sesam ehf, dagsett 4. júní 2020, þar sem sótt er um leyfi til að setja upp þrjú þjónustuskilti í nágrenni fyrirtækisins ásamt 3,75 fm skilti innan lóðar fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir uppsetningu skiltanna.
-
7. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
Mál 1805134 Allur ferill málsins
Lögð fram uppfærð umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir uppfærða umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.
-
8. Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir
Mál 1804020 Allur ferill málsins
Lagðir fram til kynningar samningur um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna Fólkvangs Neskaupstaðar og Hólmaness. Kynntur kostnaður vegna framkvæmda í Fólkvangi Neskaupstaðar og í Hólmanesi.
-
9. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra að yfirfara drögin og vísar svo drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar til umfjöllunar í bæjarráði, menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráði og safnanefnd.
-
10. Uppbygging á æfingasvæði á Eskifirði
Mál 2006024 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Ungmennafélagsins Austra vegna uppbyggingar íþróttasvæðis við Sundlaugina á Eskifirði og aðkomu félagsins að því. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá íþrótta- og tómstundanefnd til kynningar.
-
11. Átak í fráveitumálum
Mál 2006008 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samorku, dagsett 2. júní 2020, er varðar styrki til fráveituframkvæmda á vegum sveitarfélaga í tengslum við sérstakt tímabundið fjárfestingaátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs Covid-19. Vísað til sviðsstjóra framkvæmdasviðs til afgreiðslu og kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
12. Samingur um dælubíl og tengda þjónustu
Mál 2006071 Allur ferill málsins
Lagður fram samningur milli Fjarðabyggðar og Meta ehf um dælubíl og tengda þjónustu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar því að þessi þjónusta verði í boði í Fjarðabyggð og samþykkir samninginn fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
13. Snjómokstur í Fjarðabyggð
Mál 2006083 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur framkvæmdasviði að taka saman kostnað síðustu ára við snjómokstur í hverfum Fjarðabyggðar ásamt skipulagi hans og leggja fyrir nefndina til umræðu.
-
14. Opin leiksvæði í Fjarðabyggð
Mál 1810205 Allur ferill málsins
Fyrir liggur að fara þarf í viðhald á leiksvæðum Fjarðabyggðar.
Eigna-, skpulags- og umhverfisnefnd felur framkvæmdasviði að hefja viðhald á leiksvæðum í hverfum Fjarðabyggðar.