NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 264
29. júní 2020, kl. 16:00 til 18:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 670 liður 7
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 29. júní lögð fram til afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
Mál 2006135 Allur ferill málsins
Fiskeldi Austfjarða hf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu 7.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði, Fjarðabyggð.
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 106/2000 óskar Skipulagsstofnun eftir umsögn um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Meðfylgjandi er frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar auk viðauka. Kynnt tilkynning um beiðni á umsögn vegna frummatsskýrslu. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi forsendur og felur atvinnu- og þróunarstjóra að taka saman gögn fyrir umsögn í samstarfi við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og leggja fyrir nefndina.
-
2. Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði
Mál 2006076 Allur ferill málsins
Lögð fram ósk varðandi umsögn um fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur áður sett fram nýtingaráætlun og ályktanir fyrir sveitarfélagið um uppbyggingu fiskeldis í Fjarðabyggð sem eina af stoðum atvinnulífs. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd er sammála þeirri stefnu sem þar hefur verið framsett og felur bæjarritara að svara erindinu í samræmi við það.
-
3. Framkvæmdasvið verkefni 2020
Mál 2003017 Allur ferill málsins
Lagt fyrir minnisblað framkvæmdasviðs varðandi framkvæmdir ársins 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi framkvæmdir og samþykkir að haldið verði áfram með þau verkefni sem eru á áætlun ársins. Gerð og afgreiðslu viðauka er vísað til bæjarráðs.
-
4. Skólavegur framkvæmdir 2019
Mál 1906142 Allur ferill málsins
Sviðstjóri framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda við Skólaveg og verkefna sem því tengjast.
Verið er að vinna við heimtaugar og frágang í ystu botnlöngunum ásamt því að undirbúningur fyrir lagningu malbiks er að hefjast, sem áætlað er að verði um 10 júlí nk.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur áherslu á að vinna við frágang götunnar fyrir malbik hefjist sem fyrst. Jafnframt að þess verði gætt að rykbinda götuna á meðan malbik er ekki komið á hana.
-
5. Snjómokstur í Fjarðabyggð
Mál 2006083 Allur ferill málsins
Sviðstjóri framkvæmdasviðs leggur fram minnisblað varðandi kostnað og skipulag á snjómokstri síðusta þriggja ára.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi umhald og framkvæmd snjómoksturs í sveitarfélaginu og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður og leggja fyrir nefndina.
-
6. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
Mál 2004112 Allur ferill málsins
Tillaga starfshóps um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði liggur fyrir ásamt frumáætlun frá Mannvit vegna þess. Bæjarráð hefur óskað eftir umsögn frá Eigna-skipulags- og umhverfisnefnd vegna þessa.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi tillöguna og gögnin og telur rétt að farið verði í jarðvegsframkvæmdir nú í júlí vegna byggingarinnar meðan grunnskólinn er í sumarfríi og þeim lokið áður en hann hefst að nýju og byggingasvæðið þá afgirt til að hægt sé að halda áfram í framkvæmdum á því án þess að trufla skólahald. Þá verði samhliða farið í endanlega hönnun hússins og frekari undirbúning byggingarinnar og verkinu skipt í mismunandi verkþætti sem boðnir verði út samhliða gangi verksins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar máli að nýju til bæjarráðs.
-
7. 740 Naustahvammur 64, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Mál 2006091 Allur ferill málsins
Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi Naust 1 vegna nýrrar lóðar við Naustahvamm 64.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Naust 1 og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna málið.
-
8. 735 Eskifjarðarhöfn - Framkvæmdaleyfi, stækkun
Mál 2006138 Allur ferill málsins
Umsókn um framkvæmdarleyfi frá Fjarðabyggðarhöfnum vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar.
Fyrir liggur álit Skipulagsstofnunar um að framkvæmdin sé ekki háð umhverfismati.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdina fyrir sitt leyti og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gefa út framkvæmdaleyfi vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar.
-
9. 750 Búðavegur 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2006032 Allur ferill málsins
Umsókn frá Rafael.ehf um vegna gerðar þriggja íbúða að Búðarvegi 35 á Fáskrúðsfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir áformin fyrir sitt leyti og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsviðs frágang málsins.
-
10. 730 Öldugata 3 - byggingarleyfi, íbúðarhús
Mál 2006014 Allur ferill málsins
Umsókn frá Gunnari Th. Gunnarssyni um byggingaleyfi við Öldugötu 3 á Reyðarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfi fyrir sitt leyti og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
11. 740 Tandrastaðir - byggingarleyfi, vatnstankur
Mál 2006137 Allur ferill málsins
Fyrir liggur umsókn Fjarðabyggðar vegna byggingar vatnstanks við vatnsveitu á Tandrastöðum í Norðfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
12. 755 Hólaland 22 - byggingarleyfi, breytt aðkoma að lóð
Mál 2006113 Allur ferill málsins
Umsókn frá Páli Grétari Steingrímssyni vegna breytingar á aðkomu að Hólalandi 22 á Stöðvarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að færa aðkomu að Hólalandi 22 þannig að hún verði frá Borgargerði og aðkomu frá Hólalandi verði lokað. Sviðstjóra umhverfis- og skipulagssvið falið að ganga frá málinu.
-
13. 735 Lambeyrarbraut 3 - byggingarleyfi, endurgerð þaks
Mál 2006143 Allur ferill málsins
Umsókn frá Leifi Már Leifssyni vegna endurgerðar á þaki að Lambeyrarbraut 3 ásamt öðrum lagfæringum á húseigninni.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykktir áformin og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
14. 750 Tunguholt - byggingarleyfi, breytt notkun
Mál 2006119 Allur ferill málsins
Umsókn frá Björgu Friðmarsdóttur um breytta notkun á Tunguholti í Fáskrúðsfirði. Sótt er um að breyta notkun hússins úr gistiheimili í íbúðarhús.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytta notkun hússins og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
15. 730 Bakkagerði 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2006066 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Bakkagerði 8 á Reyðarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
16. 730 Óseyri 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2001078 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Óseyri 2 á Reyðarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur áður tekið fyrir umsókn Olíudreifingar um endurnýjun lóðarleigusamnings að Óseyri 2 á Reyðarfirði. Fyrir liggur að breyting hefur átt sér stað á skipulagi svæðisins og gert er ráð fyrir íbúðarbyggð að Óseyri því getur eigna-, skipulgas- og umhverfisnefnd ekki samþykkt endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyrar 2.
-
17. 740 Hafnarbraut 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2006011 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Hafnarbrautar 24 á Norðfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
18. 730 Mánagata 19 - umsókn um stækkun lóðar
Mál 2006107 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn frá Jóni Ólafi Eiðssyni um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mánagötu 19 og jafnframt sótt um stækkun lóðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssvið að gefa út nýjan lóðarleigusamning með stækkun lóðar.
-
19. 730 Heiðarvegur 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2004075 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Heiðarvegur 10 á Reyðarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
20. 735 Bleiksárhlíð 57 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2005084 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Bleiksárhlíð 57 á Eskifirði.
Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
21. 740 Hafnarbraut 22 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 1904001 Allur ferill málsins
msókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Hafnarbraut 22 á Norðfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
-
22. Egilsbraut 4 - skjalasafn
Mál 1907058 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar skjalageymslu Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir málið í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.
-
23. Umsókn um styrk til fornleifaskráningar í Vöðlavík, á Krossanesi og Útsveit
Mál 1705065 Allur ferill málsins
Áframhaldandi fornleifaskráning á Gerpissvæðinu erindi frá Hjörleifi Guttormssyni á fornleifaskráningu á jörðum í Vöðlavík´. Sótt er um 750.000kr í styrk vegna verkefnisins, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veit styrkinn og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að ganga frá styrk beiðninni.
-
24. Hálendi Austurlands - ályktun aðalfundar Landverndar 2020
Mál 2006092 Allur ferill málsins
Ályktun aðalfundar Landverndar 2020 um vernd hálendis Austurlands lögð fram til kynningar
-
25. Gerð hjólabrautar í Neskaupstað
Mál 2006116 Allur ferill málsins
Lagt fyrir erindi frá áhugahópi um fjallahjólreiðar er varðar gerð hjólastígs ofan Strandgötu 62 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tekur jákvætt í erindið og felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að ræða við hópinn um málið vegna annarar nýtingar svæðisins og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
26. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020
Mál 2002144 Allur ferill málsins
Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020 lögð fram til kynningar
-
27. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
Mál 1908022 Allur ferill málsins
Vísað til umsagnar eigna-, skipulags og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar minnisblaði framkvæmdasviðs varðandi viðgerð á sundlauginni á Reyðarfirði. Að því loknu verður málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mælir með við bæjarráð að farið verði í að dúkleggja sundlaugina á Reyðarfirði sem er varanlegasta lausnin á viðhaldi hennar en um leið getur gólfið ekki farið yfir sundlaugina aftur. Nefnin telur að í slíka aðgerð væri hægt að ráðst á vorönn 2021 og kenna sundnámskeið það vor í húsinu, íþróttakennsla væri þá leyst með öðrum hætti vor og haust það ár þar til nýtt íþróttahús á Reyðarfirði væri komið í gagnið.