Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 265

13. júlí 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 672 liður 8

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 265 frá 13. júlí 2020, samþykkt með þremur atkvæðum í umboði bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Niðurstaða matsmanns í matsmáli - Tandrastaðir og Fannadalur

    Mál 2007032 Allur ferill málsins

    kynnt niðurstaða matsmanns í matsmáli - Tandrastaðir og Fannadalur.

  2. 2. Trjákurl til húshitunar

    Mál 1905004 Allur ferill málsins

    Valgeir Ægir Ingólfsson atvinnu- og þróunarstjóri Fjarðabyggðar fór yfir stöðu verkefnisins Trjákurl til húshitunar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd Felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.

  3. 3. 730 Hjallaleira 23- 25 - umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2007018 Allur ferill málsins

    730 Hjallaleira 23- 25 - umsókn um stöðuleyfi. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfið og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gefa það út.

  4. 4. Stoppustöð við lóð Múlans

    Mál 2007019 Allur ferill málsins

    Breytingar á stoppistöð við Bakkaveg 5 Norðfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að kanna með flutning á stoppistöðinni og ræða við hlutaðeigandi þar um og leggja fyrir nefndina að nýju.

  5. 5. Vatnsveita, nýr vatnstankur í Fannardal

    Mál 2007035 Allur ferill málsins

    Opnuð tilboð í verkið nýr vatnstankur í Fannardal.

    Lagt er til að samið verði við MVA um verkið á tilboði þeirra.

    Einnig er lagt til eins og fram kemur í minnisblaði að samið verði við MVA um að þeir byggi báða áfangana og greiðsla fyrir seinni áfangann komi til á árinu 2021. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að farið verði í verkið á þessum forsendum. vísað til bæjarráðs að nýju.

    Tilboð í verkið nýr vatnstankur í Fannardal.

    Bæjarráð samþykkir tilboð MVA sem lægstbjóðandi í verkið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs frágang málsins. Jafnframt er málinu vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar um frávikstilboð.

  6. 6. Starfshópur um tjaldsvæði

    Mál 2004044 Allur ferill málsins

    Tillaga starfshóps um tjaldsvæði tekin til umfjöllunar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun taka tillögur starfshópsins til frekari umfjöllunar í tengslum við vinnslu fjárhagsáætlunar ársins 2021

  7. 7. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar

    Mál 1908022 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 10. júlí tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að farið verði í að dúkaleggja sundlaugina á Reyðarfirði vorið 2021 og að sundkennsla verði á Eskifirði á haustönn 2020. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur framkvæmdasviði að vinna málið áfram og málinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.

  8. 8. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði

    Mál 2004112 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. júlí að farið verði í jarðvegsframkvæmdir nú í júlí vegna byggingarinnar meðan grunnskólinn er í sumarfríi og þeim lokið áður en hann hefst að nýju og byggingasvæðið þá afgirt til að hægt sé að halda áfram í framkvæmdum á því án þess að trufla skólahald. Þá verði samhliða farið í endanlega hönnun hússins og frekari undirbúning byggingarinnar og verkinu skipt í mismunandi verkþætti sem boðnir verði út samhliða gangi verksins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar ræddi gang framkvæmdarinnar. Verðkönnun vegna jarðvegsframkvæmda fer út á næstu dögum. nefndin leggur áherslu á að hefja jarðvegsframkvæmdir sem fyrst til að þeim ljúki áður en skóli hefst ef kostur er.

  9. 9. Fagradalsbraut, þverun hennar fyrir umferð hesta

    Mál 2007045 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf frá hestamönnum á Reyðarfirði um þverun Fagradalsbrautar við búfjárbyggðina að Kolli í Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir áhyggjur hestamann vegna slysahættu af miklum umferðarþunga á Fagradalsbraut.