Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 672

27. júlí 2020, kl. 08:30 til 09:12, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 295 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Vatnsveita, nýr vatnstankur í Fannardal

    Mál 2007035 Allur ferill málsins

    Samþykkt hefur verið að semja við MVA um verkið nýr vatnstankur í Fannardal, á grundvelli tilboðs þeirra.

    Lagt er til, eins og fram kemur í minnisblaði, að samið verði við MVA um byggingu beggja áfanga verksins og að greiðsla fyrir seinni áfangann falli til á árinu 2021. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að farið verði í verkið á þessum forsendum og seinni áfangi verði tekinn af fjárfestingaráætlun 2021. Bæjarráð staðfestir ákvörðun nefndarinnar.

  2. 2. Verksamningur vegna vatnstanks í Fannardal

    Mál 2007061 Allur ferill málsins

    Lagður fram til staðfestingar verksamningur við MVA ehf. um byggingu vatnstanks með stækkun í Fannardal. Bæjarráð staðfestir verksamnning.

  3. 3. Kauptilboð í Kirkjustíg 7 frá Helgu Bjarnason

    Mál 2007051 Allur ferill málsins

    Framlagt tilboð í húseignina Kirkjutíg 7 á Eskifirði. Húsið er selt til flutnings en það var keypt vegna ofanflóðavarna þar sem til stóð að rífa húsið ef það seldist ekki. Bæjarráð hefur áður samþykkt tilboðið í tölvupóstsamskiptum og staðfestir nú endanlega framlagt tilboð og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

  4. 4. 740 Hof - heimreið

    Mál 2007065 Allur ferill málsins

    Bréf Þórhöllu Ágústsdóttur og Viðars Guðmundssonar er varðar endurbætur á heimreiðinni að Hofi í Norðfjarðarsveit, sem gera þarf í framhaldi af framkvæmdum á vegum bæjarins. Bæjarráð hefur yfirfarið málið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir við bréfritara.

  5. 5. Heimildarmynd um sundlaugar - Sundlaugin á Reyðarfirði

    Mál 2007042 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Jóni Karli Helgasyni, kvikmyndagerðarmanni, vegna upptöku á framkvæmdum við sundlaugina á Reyðarfirði. Bæjarráð hefur áður samþykkt að farið verði í framkvæmdir við laugina vorið 2021 og felur forstöðumanni stjórnsýslu að ræða við bréfritara á þeim forsendum.

  6. 6. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði

    Mál 2004112 Allur ferill málsins

    Engin tilboð bárust í jarðvegsskipti vegna byggingar íþróttahúss á Reyðarfirði. Þar sem engin tilboð bárust í jarðvegsskipti fyrir nýtt íþróttahús á Reyðarfirði, felur bæjarráð sviðsstjóra framkvæmdasviðs að koma verkinu til framkvæmda sem byggð er á hönnunargögnum og kostnaðaráætlun.

  7. 7. Úttekt á skipulagi og rekstri 06 Íþrótta- og æskulýðsmála

    Mál 2007060 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar verkefnalýsing um skoðun og úttekt á fyrirkomulagi rekstrar Fjarðabyggðar í málaflokki íþrótta- og æskulýðsmála. Bæjarráð samþykkir að fara í úttekt og skoðun á rekstri íþrótta- og æskulýðsmála hjá Fjarðabyggð og felur bæjarstjóra að semja við Ráðrík ehf. um verkið samkvæmt framlagðri verkefnalýsingu. Kostnaður tekinn af liðnum óráðstafað.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 265

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 265 frá 13. júlí 2020, samþykkt með þremur atkvæðum í umboði bæjarstjórnar.

    1. 8.1 Niðurstaða matsmanns í matsmáli - Tandrastaðir og Fannadalur2007032
    2. 8.2 Trjákurl til húshitunar1905004
    3. 8.3 730 Hjallaleira 23- 25 - umsókn um stöðuleyfi2007018
    4. 8.4 Stoppustöð við lóð Múlans2007019
    5. 8.5 Vatnsveita, nýr vatnstankur í Fannardal2007035
    6. 8.6 Starfshópur um tjaldsvæði2004044
    7. 8.7 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar1908022
    8. 8.8 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112
    9. 8.9 Fagradalsbraut, þverun hennar fyrir umferð hesta2007045