Bæjarráð, fundur 673
10. ágúst 2020, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 295 liður 5
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. 735 - Deiliskipulag, Eskifjörður-miðbær
Mál 1502041 Allur ferill málsins
Auglýsingartími vegna deiliskipulagsins Eskifjörður - miðbær er liðinn. Engar athugasemdir bárust. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, deiliskipulagið Eskifjörður - miðbær, uppdráttur, skýringaruppdráttur, greinagerð og umhverfisskýrsla, dagsett í mars 2020. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð samþykkir deiliskipulagið Eskifjörður - miðbær í umboði bæjarstjórnar.
-
2. 740 Naustahvammur 64, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Mál 2006091 Allur ferill málsins
Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi Naust 1 vegna nýrrar lóðar við Naustahvamm 64. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Naust 1 og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna málið. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir breytingu á deiliskipulagi Naust 1.
-
3. Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID19
Mál 2002090 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir þær aðgerðir sem sveitarfélagið hefur gripið til á síðustu vikum.
-
4. Fundargerðir aðgerðastjórnar á Austurlandi vegna Covid19
Mál 2008011 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar þrjár síðustu fundargerðir aðgerðastjórnar á Austurlandi vegna COVID19. Fundargerðirnar eru frá 14. júlí, 21. júlí og 4. ágúst.
-
5. Ágangur sauðfjár í þéttbýli
Mál 2008012 Allur ferill málsins
Umræða vegna kvartana sem borist hafa vegna ágangs sauðfjár í þéttbýli. Bæjarráð felur framkvæmdasviði og fjallskilastjóra að bregðast við ágangi sauðfjár í þéttbýli með því að smala saman fé og flytja út fyrir þéttbýlismörk.
-
6. Umsókn um styrk til starfsemi blakdeildar Þróttar
Mál 2006148 Allur ferill málsins
Beiðni Blakdeildar Þróttar um samning. Íþrótta- og tómstundafulltrúi sat þennan lið fundarins. Bæjarstjóra falið að fara yfir málið og leggja að því loknu minnisblað fyrir bæjarráð.
-
7. Barnaverndarfundargerðir 2020
Mál 2003129 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 118 frá 28.júlí, lögð fyrir bæjarráð til staðfestingar í umboði bæjarstjórnar.