Bæjarráð, fundur 674
17. ágúst 2020, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 295 liður 6
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2020 - Trúnaðarmál
Mál 2004074 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - júní 2020, skatttekjur og launakostnað janúar - júlí 2020. Fjármálastjóri kynnti yfirlit.
-
2. Gjaldskrár leikskóla og skólamáltíða
Mál 2008015 Allur ferill málsins
Í starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 stendur að gjaldskrá leikskóla og skólamáltíða í grunnskólum breytist frá og með 1. ágúst 2020. Breytingin á gjaldskrá leikskóla er lækkun hádegismáltíðar um helming eða úr 2.937 kr. í 1.468 kr. og gjald fyrir skólamáltíð í grunnskóla lækkar einnig um helming og fer úr 300 kr. í 150 kr. Gjaldskrá leikskóla fyrir ágúst verður leiðrétt með reikningum í september.
Bókun frá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Í ljósi þeirra efnahagslegra áhrifa vegna covid 19, samdráttar í tekjum sveitarfélagsins, aukins rekstrarkostnaðar og lántöku vegna þessa, leggur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins til að meirihlutinn endurskoði lækkun á skólamáltíðum og haldi þeim óbreyttum. Óvissan er mikil um komandi tíma og ætti sveitarfélagið að stíga varlega niður í öllum útgjaldaliðum.
Bókun meirihluta Framsóknarflokksins, Fjarðalistans auk Miðflokksins.
Meirihluti L, B og M- listi taka undir að ýmis efnahagsleg óvissa er nú uppi í samfélaginu og nauðsynlegt að rýna allar efnahagslegar aðgerðir vel. En þar með er það ekki sagt að rétt sé að fara ávallt í niðurskurð í efnahagsástandi eins og nú er og sjálfstæðismenn í Fjarðabyggð leggja ávallt til í tillögum sínum. Nauðsynlegt getur líka verið að sveitarfélagið stígi inn og auki þjónustu og framkvæmdir til að koma á móts við íbúa sína á ýmsa vegu. Lækkun skólamáltíða liggur þegar fyrir í samþykktri starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggð fyrir árið 2020. Málefni fjölskyldunnar hafa verið og munu verða í forgangi hjá núverandi bæjaryfirvöldum og á því er engin breyting. Þá er það ljóst að aðgerð eins og þessi kemur fjölskyldufólki hvað best.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagða gjaldskrá leikskóla og skólamáltíða. Dýrunn Pála Skaftadóttir situr hjá.
-
3. Samningur um skólamáltíðir í grunnskólum Fjarðabyggðar 2017
Mál 1708143 Allur ferill málsins
Lögð fram til upplýsinga framlenging til eins árs, á grundvelli fyrri samnings við Fjarðaveitingar um skólamáltíðir í grunnskólum Fjarðabyggðar.
-
4. Steinasafn í Breiðdal
Mál 2008033 Allur ferill málsins
Náttúruminjasafn Íslands vill stofna til sýningar í Breiðdal.
Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir og vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd.
-
5. Kaup á verkfræðiþjónustu 2020
Mál 2008029 Allur ferill málsins
Lögð fram greining fjármálastjóra á kaupum Fjarðabyggðar og stofnana á arkitekta- og verkfræðiþjónustu janúar - júní 2020 sem svar við fyrirspurn Rúnars Gunnarssonar um kaup á verkfræðiþjónustu. Greining er trúnaðarmál.
-
6. Samningur um rekstur Norðfjarðarflugvallar
Mál 2001185 Allur ferill málsins
Lögð fram lokadrög milli Fjarðabyggðar og ISAVIA að samningi vegna þjónustu við sjúkraflugvöllinn á Norðfirði.
Bæjarráð samþykkir drög samnings og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
7. Háskóli Austfjarða
Mál 1710150 Allur ferill málsins
Bæjarráð tók umræða um stöðu verkefnisins.
-
8. Ályktun Veiðifélags Breiðdælinga vegna fyrirhugaðs laxeldis í Stöðvarfirði
Mál 2008048 Allur ferill málsins
Framlögð ályktun Veiðifélags Breiðdælinga er varðar fyrirætlanir um fiskeldi í Stöðvarfirði.
Sveitarfélagið hefur þegar sent inn athugasemdir vegna fyrirhugaðs laxeldis í Stöðvarfirði. Erindi Veiðifélagsins lagt fram til kynningar.
-
9. Kauptilboð í Nesgötu 5 Neskaupstað (Sigfúsarhús) frá Raföldu ehf.
Mál 2008046 Allur ferill málsins
Af fundi vék Jón Björn Hákonarson við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar. Á fund mætir Pálína Margeirsdóttir við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Lagt fram kauptilboð Raföldu ehf. í fasteignina Nesgötu 5 í Neskaupstað - Sigfúsarhús. Bæjarráð felur fjármálastjóra að gera gagntilboð vegna sölu eignarinnar.
-
10. 750 - Stekkholt 20 - Umsókn um lóð
Mál 2007089 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Elínar Helgu Kristjánsdóttur, dagsett 27. júlí 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 17 á Fáskrúðsfirði undir íbúðarhúsnæði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
11. Fundargerðir aðgerðastjórnar á Austurlandi vegna Covid19
Mál 2008011 Allur ferill málsins
Fundargerð aðgerðastjórnar frá 7.ágúst lögð fram til kynningar. Fundargerð er trúnaðarmál.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 266
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 266 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboð bæjarstjórnar staðfestir samhljóða fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
- 12.1 750 - Stekkholt 20 - Umsókn um lóð2007089
- 12.2 740 Naustahvammur 76 - byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði2007107
- 12.3 Naustahvammur 64 - byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði2007090
- 12.4 730 Brekkugerði 5 - Umsókn um byggingarleyfi, íbúðarhús2006084
- 12.5 Hjallaleira 23 - byggingarleyfi, malbikunarstöð2006149
- 12.6 730 Heiðarvegur 14a - Framkvæmdaleyfi, jarðvinna íþróttahúss2008008
- 12.7 760 Hrafnagilslækur - efnistaka2008006
- 12.8 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará1702150
- 12.9 Trjákurl til húshitunar1905004
- 12.10 Sorpmál í Fjarðabyggð1909099