Bæjarráð, fundur 675
24. ágúst 2020, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, varamaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 296 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 24. ágúst sl. að undanskildum lið 7 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi
Mál 2008095 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Beu Meijer í tengslum við uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi.
Bæjarráði var ekki kunnugt um uppsögnina og þær breytingar sem henni fylgja. Starf svæðisfulltrúa er mjög mikilvægt fyrir Austurland og hefur sveitarfélagið átt gott samstarf við Rauða Krossinn í gegnum tíðina.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ræða við Rauða Krossinn um málið enda er það óviðunandi að ekki sé svæðisfulltrúi á Austurlandi. Vísað til félagsmálanefndar.
-
2. Erlendir ferðamenn í Fjarðabyggð 2014-2019
Mál 2007004 Allur ferill málsins
Framlögð greining frá Rannsóknum og ráðgjöf sem unnin var í júní 2020 um niðurstöður og greiningar á straumi ferðamanna til Íslands. Kynnt og vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar.
-
3. Framkvæmdir við Lambeyrarbraut
Mál 2008087 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Hreggviðs Sigurþórssonar f.h. íbúa við Lambeyrarbraut, er varðar óánægju þeirra með hönnun og útfærslu ofanflóðavarna við Lambeyrarána.
Fundað hefur verið með íbúum við götuna og athugasemdum þeirra komið á framfæri við hönnuði framkvæmdanna. Áfram verður athugasemdir íbúanna komið á framfæri við hönnuði. Athugasemdum komið á framfæri við eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
4. Ágangur sauðfjár í þéttbýli
Mál 2008012 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sverris Mar Albertssonar og Grétu Garðarsdóttur um ágang sauðfjár í þéttbýli.
Bæjarráð hefur áður tekið fyrir málefni sauðfjár í þéttbýlum sveitarfélagsins. Málið hefur verið í umfjöllun og vinnslu hjá umhverfis- og skipulagssviði og framkvæmdasviði til að bregðast við ágangi sauðfjár í þéttbýlinu. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og umhverfisstjóra falið að svara erindi og vinna að málinu. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar.
-
5. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2019
Mál 2008075 Allur ferill málsins
Lagður fram til undirritunar ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2019.
Bæjarráð staðfestir ársreikning Hitaveitu Fjarðabyggðar 2019 og undirritar.
-
6. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. 2019
Mál 2008076 Allur ferill málsins
Lagður fram til undirritunar ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2019.
Stjórnarmenn undirrita ársreikning Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2019 og staðfesta hann.
-
7. Kauptilboð í Nesgötu 5 Neskaupstað (Sigfúsarhús) frá Raföldu ehf.
Mál 2008046 Allur ferill málsins
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar. Pálína Margeirsdóttir mætir á fund við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Lagt fram nýtt tilboð Raföldu ehf. í fasteignina Nesgötu 5 í Neskaupstað, Sigfúsarhús.
Bæjarráð samþykkir tilboðið og felur bæjarstjóra undirritun og frágang skjala vegna kaupanna.
-
8. Sérstakur byggðakvóti Breiðdal
Mál 2008108 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Goðaborg ehf. er varðar sérstakan byggðakvóta í Breiðdal.
Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna málið áfram.
-
9. Fræðslunefnd - 87
Fundargerð fræðslunefndar nr. 87 lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Samningur um skólamáltíðir í grunnskólum Fjarðabyggðar 20171708143
- 9.2 Gjaldskrár leikskóla og skólamáltíða2008015
- 9.3 Tölvur í skólum Fjarðabyggðar2005112
- 9.4 Örútboð á ritföngum 20202006075
- 9.5 Tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags2008061
- 9.6 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020
- 9.7 Fundaáætlun fræðslunefndar haustið 20202008062