Uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi
Mál 2008095 Fyrst á dagskrá 24. ágúst 2020, síðast 17. september 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 675 liður 1
Framlagður tölvupóstur Beu Meijer í tengslum við uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi.
Bæjarráði var ekki kunnugt um uppsögnina og þær breytingar sem henni fylgja. Starf svæðisfulltrúa er mjög mikilvægt fyrir Austurland og hefur sveitarfélagið átt gott samstarf við Rauða Krossinn í gegnum tíðina.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ræða við Rauða Krossinn um málið enda er það óviðunandi að ekki sé svæðisfulltrúi á Austurlandi. Vísað til félagsmálanefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 296 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 675“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Félagsmálanefnd, fundur 136 liður 6
Framlagður tölvupóstur Beu Meijer í tengslum við uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ræða við Rauða Krossinn um málið enda er það óviðunandi að ekki sé svæðisfulltrúi á Austurlandi.
Félagsmálanefnd lýsir yfir áhyggjum vegna uppsagnar svæðisfulltrúa RKÍ.
-
Bæjarráð, fundur 678 liður 15.6
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 136“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 297 liður 8.6
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 136“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.