Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 297

17. september 2020, kl. 16:00 til 16:50, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Magni Þór Harðarson, varamaður
  • Sigurður Ólafsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 677

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Dýrunn Pála Skaftadóttir, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 20242005017
    2. 1.2 Lántaka 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga2001114
    3. 1.3 Sala á eignarhlut í Netorku ehf.2009016
    4. 1.4 Samningur um kaup RARIK á dreifikerfi Rafveitu Reyðarfjarðar2001224
    5. 1.5 Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar2005127
    6. 1.6 Aðalfundur í stjórn Breiðdalsseturs 20202009013
    7. 1.7 Umsókn um styrk til starfsemi blakdeildar Þróttar2006148
    8. 1.8 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð1904072
    9. 1.9 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20202002033
    10. 1.10 Umsögn vegna breytingu á lögum um byggðakvóta nr. 116/20062009038
    11. 1.11 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður2009034
    12. 1.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2682008018F
    13. 1.13 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 182008016F
  2. 2. Bæjarráð - 678

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14.september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 20212005025
    2. 2.2 Rekstur málaflokka 2020 - trúnaðarmál2004074
    3. 2.3 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020 - trúnaðarmál2001149
    4. 2.4 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará1702150
    5. 2.5 Reglur um stuðningsþjónustu2009002
    6. 2.6 Ályktanir aðalfundar Ungmennafélagsins Leiknis 20202008109
    7. 2.7 Hin árlega Evrópuvika haldin á netinu 5.-20. október 20202009066
    8. 2.8 Áskorun - félag íslenskra handverksbrugghúsa2009067
    9. 2.9 Húsnæðismál kvenfélagsins Nönnu2009054
    10. 2.10 Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar2005127
    11. 2.11 Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 20221908104
    12. 2.12 Nefndaskipan Framsóknarflokks 2018-20221904039
    13. 2.13 Íþrótta- og tómstundanefnd - 782009009F
    14. 2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2692009008F
    15. 2.15 Félagsmálanefnd - 1362009003F
    16. 2.16 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 302009001F
    17. 2.17 Fræðslunefnd - 882009007F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 268

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 31.ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Vegaframkvæmdir2004031
    2. 3.2 Trjákurl til húshitunar1905004
    3. 3.3 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
    4. 3.4 Snjómokstur í Fjarðabyggð2006083
    5. 3.5 Framkvæmdir við Lambeyrarbraut2008087
    6. 3.6 Vatnstjón á Eyrarstíg 11801118
    7. 3.7 760 Norðurdalsá - Framkvæmdaleyfi vegna malarnáms2008130
    8. 3.8 Handhafabreyting á starfsleyfi Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði2008131
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 269

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7.september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Dýraeftirlit 20202001048
    2. 4.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
    3. 4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
    4. 4.4 740 Breiðablik 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2008104
    5. 4.5 Trjákurl til húshitunar1905004
    6. 4.6 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20202002144
  5. 5. Fræðslunefnd - 88

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar 9.september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar2005171
    2. 5.2 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2020-20212009033
    3. 5.3 Viðmiðunarstundaskrá grunnskóla - tillaga að breytingu - umsögn2008153
    4. 5.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 78

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 9. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Úttekt á skipulagi og rekstri 06 Íþrótta- og æskulýðsmála
    2. 6.2 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
    3. 6.3 Um hlutverk og tilgang ungmennaráða sveitarfélaga ? hvatning til sveitarfélaga
    4. 6.4 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
  7. 7. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Magni Þór Harðarson.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 7. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20212005019
    2. 7.2 Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar2006128
    3. 7.3 Erlendir ferðamenn í Fjarðabyggð 2014-20192007004
    4. 7.4 Verkefni menningarstofu 20202001116
  8. 8. Félagsmálanefnd - 136

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 8. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
    2. 8.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 20212005024
    3. 8.3 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    4. 8.4 Reglur um stoð- og stuðningsþjónustu2009002
    5. 8.5 Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 20212009001
    6. 8.6 Uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi2008095
    7. 8.7 Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar2005127
    8. 8.8 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 182008016F
  9. 9. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 18

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimila frá 2. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 9.1 Rekstur hjúkrunarheimila og Covid 19
    2. 9.2 Rekstur hjúkrunarheimila 2020
    3. 9.3 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
    4. 9.4 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2021
    5. 9.5 Málefni hjúkrunarheimila, fundur Sambands ísl. sveitarfélaga
  10. 10. Reglur um stuðningsþjónustu

    Mál 2009002 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir nýjum reglum um stuðningsþjónustu.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að nýjum reglum þar sem öll stuðningsþjónusta er felld undir sömu reglur. Reglurnar eiga því við um þjónustu við börn sem fullorðna innan heimilis sem utan. Reglurnar ná einnig yfir þjónustu við fatlað fólk. Með nýjum reglum falla því úr gildi reglur Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu, reglur Fjarðabyggðar um stuðningsfjölskyldur, reglur um félagslega liðveislu hjá félagsþjónustusviði Fjarðabyggðar, reglur um snjómokstur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja og reglur um garðslátt fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Félagsmálanefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um stuðningsþjónustu.

  11. 11. Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar

    Mál 2005127 Allur ferill málsins

    Forseti mælti fyrir tillögu að uppsögn samnings Sjúkratrygginga Íslands og Hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhlíðar.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að samning um rekstur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð við Sjúkratryggingar Íslands verði sagt upp.

    Málefni hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð hafa verið um langt skeið til ítarlegrar umfjöllunar innan nefnda og ráða sveitarfélagsins. Jafnframt hafa bæjaryfirvöld verið um árabil í viðræðum við heilbrigðisyfirvöld um málaflokkinn þar sem ljóst er að fjárhagslegur grundvöllur reksturs þeirra er brostinn, þrátt fyrir að yfirstjórn og starfsfólk þeirra hafi kappkostað að haga rekstrinum sem best um leið og staðinn hefur verið vörður um faglegt starf og kröfur, og hefur verið um langa tíð. Þessar viðræður hafa engan árangur borið og því getur sveitarfélagið Fjarðabyggð ekki unað lengur.

    Vaxandi taprekstur hefur verið á rekstri heimilanna síðan árið 2014 og er hallinn orðinn um 150 milljónir króna á þessum tíma. Þá hefur sveitarfélagið lagt þeim til fé á móti úr rekstri sínum þrátt fyrir ábyrgð málaflokksins sé á hendi ríkisvaldsins . Þá hefur ótal sinnum verið bent á það ósamræmi sem er í rekstrarumhverfi hjúkrunarheimilanna þar sem sum þeirra eru nú fjármögnuð beint af ríkisframlögum.

    Vegna þessa sér bæjarstjórn Fjarðabyggðar sér ekki annað fært en að taka undir með framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna, félagsmálanefnd og bæjarráði sveitarfélagsins og samþykkir að segja upp samningi um rekstur þeirra við Sjúkratryggingar Íslands. Um leið minnir bæjarstjórn á að ríkisvaldinu er skylt að taka við rekstrinum þannig að enginn brestur verði á þjónustu við heimilismenn á hjúkrunarheimilunum og réttindi og kjör starfsmanna þeirri haldist óbreytt líkt og kom fram við svipaðar aðstæður á Akureyri nú síðsumars er ríkisvaldið samþykkti að taka við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að samningi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð verði sagt upp og felur bæjarstjóra framkvæmd uppsagnarinnar.

  12. 12. Samgöngumál í Fjarðabyggð

    Mál 2004031 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir sameiginlegri bókun bæjarstjórnar sem lögð er fram.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að flýta gerð nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Sléttuá í Reyðarfirði sem er á þjóðvegi eitt. Í kjölfar gerðar Fáskrúðsfjarðargangna átti að fara í endurgerð brúar yfir Sléttuá og vegtengingar frá henni til þéttbýlisins á Reyðarfirði en ekki enn eru þær áætlanir komnar lengra en á teikniborðið frá árinu 2006. Við slíkt er ekki hægt að una enda er núverandi brú yfir Sléttuá umferðarþyngsta einbreiða brúin á Austurlandi samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar og ekki þarf frekari vitnanna við hvað varðar slysahættu því samhliða.

    Því skorar bæjarstjórn Fjarðabyggðar á stjórnvöld að tryggja nú fjármagn á komandi ári til að hægt verði að ráðast í verkið innan fjárfestingarátaks stjórnvalda sem miðar að því að bæta umferðaröryggi með að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegi eitt um landið. Um leið verði þá framkvæmdum við endurbætur á Suðurfjarðarvegi um Fáskrúðs- og Stöðvarfjörð flýtt í núverandi samgönguáætlun því ekki er minni þörf á endurbótum þess vegar eins og Fjarðabyggð hefur margoft bent á við samgönguyfirvöld og barist fyrir. Ekki síst við einbreiðar brýr sem þar eru í botni fjarðanna og þurfa að komast í forgang.

    Bæjarstjórn staðfestir bókun með 9 atkvæðum og felur bæjarritara að koma henni á framfæri.