Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Viðmiðunarstundaskrá grunnskóla - tillaga að breytingu - umsögn

Mál 2008153 Fyrst á dagskrá 9. september 2020, síðast 17. september 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Fræðslunefnd, fundur 88 liður 3

    Fyrir liggja til umsagnar drög að breytingum á viðmiðunarstundaskrá grunnskólanna. Í drögunum er lagt til að vægi í íslensku verði aukið úr 18,08% í 21,50%, vægi náttúrugreina verði aukið úr 8,33% í 11,01% og vægi Valgreina minnkað úr 9,90% í 3,79%. Einnig liggur fyrir Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem tekið er undir mikilvægi þess að styrkja bæði íslenskukennslu sem og kennslu í náttúrufræðigreinum en jafnframt varað við því að það sé gert með því að skerða fjölbreytt val nemenda í skólum. Sambandið telur þörf á frekari umræðu og vill skoða að ráðist verði í heildarendurskoðun á viðmiðunarstundaskránni, þar sem allar námsgreinar eru undir. Bent er á að fjölga megi kennsludögum, fækka "skertum dögum", sem nú eru 10, endurskoða kennsluhætti og efla náms- og kennslugögn, styrkja starfsþróun kennara og fjölga kennurum með sérhæfingu. Fræðslunefnd tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og telur vænlegra að þróa kennsluhætti í fyrrgreindum námsgreinum og auka kennsluráðgjöf og sérhæfingu kennara.

  2. Bæjarráð, fundur 678 liður 17.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 88“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 297 liður 5.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 88“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is