Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 678

14. september 2020, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 297 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14.september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021

    Mál 2005025 Allur ferill málsins

    Framlagður fjárhagsrammi bæjarráðs vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2021 vegna verkefna er heyra beint undir bæjarráð.

    Bæjarráð felur sviðsstjórum vinnslu fjárhagsáætlunar 2021 og þeir leggi tillögur fyrir bæjarráð.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2020 - trúnaðarmál

    Mál 2004074 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit frá fjármálastjóra um rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júlí og launakostnað og skatttekjur janúar - ágúst 2020. Gögn lögð fram sem trúnaðarmál.

  3. 3. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020 - trúnaðarmál

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  4. 4. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará

    Mál 1702150 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Framkvæmdasýslu ríkisins vegna tilboða í framkvæmdir við ofanflóðavarnir við Lambeyrará. Að tillögu Framkvæmdasýslu ríkisins er lagt til við Fjarðabyggð og Ofanflóðasjóð að tilboði verði hafnað og gengið verði til samningskaupa.

    Bæjarráð samþykkir tillögu Framkvæmdasýslunnar um að tilboði verði hafnað og að gengið verði til samningskaupa.

  5. 5. Reglur um stuðningsþjónustu

    Mál 2009002 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til staðfestingar bæjarráðs nýjum reglum um stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð. Með nýjum reglum er öll stuðningsþjónusta sett undir sömu reglur. Reglurnar eiga því við um þjónustu við börn sem fullorðna og innan heimilis sem utan. Reglurnar ná einnig yfir þjónustu við fatlað fólk. Með nýjum reglum falla því úr gildi reglur Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu, reglur Fjarðabyggðar um stuðningsfjölskyldur, reglur um félagslega liðveislu hjá félagsþjónustusviði Fjarðabyggðar, reglur um snjómokstur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja og reglur um garðslátt fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar jafnframt til sviðsstjóra fjölskyldusviðs og félagsmálanefndar endurskoðun á hlutaðeigandi gjaldskrám vegna breyting sem nýjar reglur fela í sér og leysa eldri reglur af.

  6. 6. Ályktanir aðalfundar Ungmennafélagsins Leiknis 2020

    Mál 2008109 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf Ungmennafélagsins Leiknis frá 4.september sl. er varðar bókun á fundi bæjarráðs 31.ágúst.

    Bæjarráð vísar erindi til íþrótta- og tómstundafulltrúa til afgreiðslu.

  7. 7. Hin árlega Evrópuvika haldin á netinu 5.-20. október 2020

    Mál 2009066 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um árlega Evrópuviku sem verður haldin 5.- 20.október sem fer að þessu sinni alfarið fram á netinu.

    Bæjarráð vísar erindi til bæjarfulltrúa og sviðsstjóra til kynningar.

  8. 8. Áskorun - félag íslenskra handverksbrugghúsa

    Mál 2009067 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar áskorun frá Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa þar sem skorað er á dómsmálaráðherra að leggja frumvarp um netverslun með áfengi fram á nýjan leik og tryggja íslenskum handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum.

  9. 9. Húsnæðismál kvenfélagsins Nönnu

    Mál 2009054 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Kvenfélagsins Nönnu frá 8.september sl. þar sem óskað er eftir að félagið fái aðstöðu í Egilsbúð.

    Vísað til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til afgreiðslu.

  10. 10. Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar

    Mál 2005127 Allur ferill málsins

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar. Dýrunn Pála Skaftadóttir var í símasambandi við fund við umfjöllun og afgreiðslu hans.

    Vísað frá félagsmálanefnd til bæjarráðs umsögn vegna samninga við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð. Félagsmálanefnd tekur undir bókun framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna um að segja beri upp samningum við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur hjúkrunarheimilanna.

    Bæjarráð getur ekki unað við að rekstrarvandi hjúkrunarheimilanna lendi á rekstri sveitarfélagsins og ítrekar fyrri samþykktir sínar um að ríkið axli ábyrgð á rekstri þeirra. Þá minnir bæjarráð á ósamræmi það sem ríkjandi er, þar sem rekstur hjúkrunarheimila í nágrannasveitarfélögum er fjármagnaður beint af ríkisframlögum. Bæjarráð sendi erindi til heilbrigðisráðuneytisins í júní sl. sem ekki hafa borist fullnægjandi svör við.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti uppsögn samnings við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð og vísar staðfestingu uppsagnar til bæjarstjórnar. Jafnframt minnir bæjarráð á þá ábyrgð ríkisvaldsins á þessum málaflokki og þjónustan sé sem næst notendum.

  11. 11. Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022

    Mál 1908104 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Esther Ösp Gunnarsdóttur þar sem hún óskar eftir leyfi frá störfum í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd út árið 2020.

    Kristjana Guðmundsdóttir tekur sæti aðalmanns í stað Estherar meðan á leyfi hennar stendur. Valdimar Másson tekur sæti varamanns í stað Kristjönu á sama tíma.

  12. 12. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2018-2022

    Mál 1904039 Allur ferill málsins

    Tilnefning varamanns í barnaverndarnefnd í stað Hrafnhildar Lóu Guðmundsdóttur. Þórhalla Ágústsdóttir tekur sæti varamanns í stað Hrafnhildar.

  13. 13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 78

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 9. september sl. tekin til afgreiðslu.

    1. 13.1 Úttekt á skipulagi og rekstri 06 Íþrótta- og æskulýðsmála
    2. 13.2 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
    3. 13.3 Um hlutverk og tilgang ungmennaráða sveitarfélaga ? hvatning til sveitarfélaga
    4. 13.4 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 269

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. september sl. lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 Dýraeftirlit 20202001048
    2. 14.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
    3. 14.3 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
    4. 14.4 740 Breiðablik 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2008104
    5. 14.5 Trjákurl til húshitunar1905004
    6. 14.6 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20202002144
  15. 15. Félagsmálanefnd - 136

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 8. september sl. lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
    2. 15.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 20212005024
    3. 15.3 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    4. 15.4 Reglur um stoð- og stuðningsþjónustu2009002
    5. 15.5 Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 20212009001
    6. 15.6 Uppsögn svæðisfulltrúa Rauða krossins á Austurlandi2008095
    7. 15.7 Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar2005127
    8. 15.8 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 182008016F
  16. 16. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 7. september sl. lögð fram til afgreiðslu.

    1. 16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20212005019
    2. 16.2 Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar2006128
    3. 16.3 Erlendir ferðamenn í Fjarðabyggð 2014-20192007004
    4. 16.4 Verkefni menningarstofu 20202001116
  17. 17. Fræðslunefnd - 88

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9. september sl. fram til afgreiðslu.

    1. 17.1 Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar2005171
    2. 17.2 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2020-20212009033
    3. 17.3 Viðmiðunarstundaskrá grunnskóla - tillaga að breytingu - umsögn2008153
    4. 17.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020