NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 30
7. september 2020, kl. 17:00 til 19:10, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 678 liður 16
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 7. september sl. lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 297 liður 7
Til máls tók Magni Þór Harðarson.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 7. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021
Mál 2005019 Allur ferill málsins
Rammar að fjárhagsáætlun 2021 fyrir málaflokkinn menningarmál 05 fram lagðir.
Menningar- og nýsköpunarnefnd felur formanni og bæjarritara að vinna að fjárhagsáætlunargerðinni fyrir málaflokkinn og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
2. Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar
Mál 2006128 Allur ferill málsins
Farið yfir kostnað við útgáfu sögu Fáskrúðsfjarðar en óformleg verð hafa verið sett fram af útgáfufélaginu.
Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að vísa erindi til fjárhagsáætlunargerðar 2021. Jafnframt samþykkir nefndin að gerð verði áætlun um næstu skref í útgáfunni og hvenær stefnt sé að útgáfu hennar. Nefndin stefnir á að lokið verði við útgáfu sögunnar á árinu 2021.
-
3. Erlendir ferðamenn í Fjarðabyggð 2014-2019
Mál 2007004 Allur ferill málsins
Framlögð greining frá Rannsóknum og ráðgjöf sem unnin var í júní 2020 um niðurstöður og greiningar á straumi ferðamanna til Íslands. Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar frá bæjarráði. Atvinnu- og þróunarstjóri kynnir.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar fyrir góða kynningu á greiningunni. Greiningunni er vísað til áframhaldandi umfjöllunar um ferðamenn í Fjarðabyggð og ferðamálastefnu.
-
4. Verkefni menningarstofu 2020
Mál 2001116 Allur ferill málsins
Forstöðumaður menningarstofu sat þennan lið fundarins og fór yfir helstu verkefni á döfinni.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar fyrir góða yfirferð.