Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 29

24. ágúst 2020, kl. 17:00 til 18:54, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 676 liður 14

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 296 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 24. ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur vísað drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar til umfjöllunar í bæjarráði, menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráði og safnanefnd. Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins og kynnti umhverfisstefnuna.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar góða kynningu.

  2. 2. Steinasafn í Breiðdal

    Mál 2008033 Allur ferill málsins

    Náttúruminjasafn Íslands vill stofna til sýningar í Breiðdal. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að fylgja málinu eftir. Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Staða landbúnaðar í Fjarðabyggð

    Mál 2006101 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar drög að minnisblaði atvinnu- og þróunarstjóra um stöðu landbúnaðar í Fjarðabyggð. Atvinnu- og þróunarstjóri sat þennan lið fundarins. Formaður mun leggja fram tillögu á næsta fundi um skipan rýnihóps sem myndi vinna málið áfram inn í haustið.

  4. 4. Starfshópur um tjaldsvæði

    Mál 2004044 Allur ferill málsins

    Framlagður undirskriftalisti íbúa við Balann á Stöðvarfirði þar sem fyrirhugaðri staðsetningu tjaldsvæðisins er mótmælt. Mælt er með að færa tjaldsvæðið utar í fjörðinn frá núverandi staðsetningu á svokallaða Nýrækt. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að fela formanni, í samráði við formann eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, að skoða málið betur í samráði við íbúa á Stöðvarfirði.