Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 676

28. ágúst 2020, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 296 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir,Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 31. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024

    Mál 2005017 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur fjármálastjóra að forsendum fyrir gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar árin 2021 - 2024 auk þjóðhagspár og minnisblaði hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umræður um fyrstu drög að römmum fjárhagsáætlunar 2021.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2021 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Málefni hjúkrunarheimila, fundur Sambands ísl. sveitarfélaga

    Mál 2005127 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu hjúkrunarheimila og viðbrögð við bréfi Fjarðabyggðar en tölvupóstur barst frá Heilbrigðisráðuneyti.

    Bæjarráð vísar erindi til umsagnar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna um framhald samninga við Sjúkratryggingar Íslands. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  3. 3. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa

    Mál 2004159 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til bæjarráðs tillögu nefndarinnar um að verkefnið Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa endurmetin í byrjun árs 2021 enda mikilvægt að koma verkefninu af stað þar sem það frestaðist vegna COVID 19 faraldursins. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði tryggt fjármagn til verkefnisins.

    Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.

  4. 4. Sumarfrístund 2020

    Mál 2002062 Allur ferill málsins

    Framlagt og kynnt minnisblað íþrótta- og frístundastjóra vegna uppgjörs, framkvæmdar og niðurstöðu könnunar foreldra vegna Sumarfrístundar 2020.

    Bæjarráð lýsir ánægju með verkefnið. Bæjarráð samþykkir jafnframt að vísa til gerðar viðauka eftirstöðvum kostnaðar vegna verkefnisins og felur fjármálastjóra úrvinnslu hans.

  5. 5. Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími

    Mál 2008127 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn vegna styttingu vinnuvikunnar til kynningar. Stytting vinnuvikunnar tekur gildi 1.1.2021 en skipa ber vinnuhóp sem sér um útfærslu ákvæða og eiga tillögur að liggja fyrir 1. október nk.

  6. 6. 735 Fossgata 3 - Umsókn um lóð

    Mál 2008028 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Helgu Bjarnason, þar sem sótt er um lóðina við Fossgötu 3 á Eskifirði undir íbúðarhúsnæði. Gert er ráð fyrir að húsnæði sem nú er staðsett á Kirkjustíg 7 á Eskifirði verði flutt á lóðina.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  7. 7. Ályktanir aðalfundar Ungmennafélagsins Leiknis 2020

    Mál 2008109 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar ályktanir frá aðalfundi Ungmennafélagsins Leiknis.

  8. 8. Greiðsla áfallinna vaxta og kostnaðar vegna fasteignagjalda - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2008099 Allur ferill málsins

    Farið yfir beiðni fyrirtækis um afslætti af vöxtum og kostnaði. Málið er trúnaðarmál.

  9. 9. Fundargerðir aðgerðastjórnar á Austurlandi vegna Covid19

    Mál 2008011 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðgerðastjórnar frá 21. ágúst lögð fram til kynningar sem trúnaðarmál.

  10. 10. Fundir í almannavarnarnefnd í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi 2020

    Mál 2004057 Allur ferill málsins

    Fundargerð almannavarnarnefndar frá 17.ágúst lögð fram til kynningar.

  11. 11. Vatnstjón - Trúnaðarmál

    Mál 1801118 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð Adolfs Guðmundssonar lögmanns vegna vatnstjóns á kjallara á Eyrarstíg 1, Reyðarfirði. Einnig er lagt fram minnisblað frá Jóni Jónssyni, lögmanni, sem mótsvar greinargerðarinnar. Jón hafði áður gefið álit árið 2019 og taldi bótaskyldu ekki vera til staðar m.t.t. skýrslu Stapa Jarðfræðistofu frá 2018.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og afla frekari gagna. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  12. 12. Kauptilboð í Hrauntún 8 Breiðdalsvík

    Mál 2008147 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð í Hrauntún 8 á Breiðdalsvík.

    Fjármálastjóra falið að vinna málið í samræmi við umræður á fundinum.

  13. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 267

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. ágúst sl. lögð fram til afgreiðslu

    1. 13.1 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    2. 13.2 Ágangur sauðfjár í þéttbýli á Eskifirði2008012
    3. 13.3 Beiðni um umsögn vegna sjókvíeldis á 10.000 tonnum af laxi í Reyðarfirði2008013
    4. 13.4 Deiliskipulag Skólar 1, óveruleg breyting, íþróttahús2008103
    5. 13.5 760 Sæberg 15 - Umsókn byggingarleyfi - viðbygging2008098
    6. 13.6 750 Hafnargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði2008101
    7. 13.7 735 Fossgata 3 - Umsókn um lóð2008028
    8. 13.8 740 - Melagata 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2007091
    9. 13.9 735 - Hátún 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2007080
    10. 13.10 Afnot af fyrrum skrifstofuhúsnæði Eskju2008072
    11. 13.11 Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2009 - 20172008079
    12. 13.12 Ályktun Veiðfélags Breiðdælinga vegna fyrirhugaðs laxeldis í Stöðvarfirði2008048
    13. 13.13 Landbúnaðarnefnd - 262008008F
  14. 14. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    2. 14.2 Steinasafn í Breiðdal2008033
    3. 14.3 Staða landbúnaðar í Fjarðabyggð2006101
    4. 14.4 Starfshópur um tjaldsvæði2004044
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 77

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 26. ágúst lögð fram til afgreiðslu

    1. 15.1 Fundaáætlun haust 2020 íþrótta- og tómstundanefnd
    2. 15.2 Úttekt á skipulagi og rekstri 06 Íþrótta- og æskulýðsmála
    3. 15.3 Sumarfrístund 2020
    4. 15.4 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
    5. 15.5 Úthlutunarreglur íþróttastyrka 2020
    6. 15.6 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
  16. 16. Landbúnaðarnefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð landbúnaðarnefndar frá 20. ágúst sl. lögð fram til afgreiðslu.

    1. 16.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    2. 16.2 Fjallskil og gangnaseðill 20202008059
  17. 17. Hafnarstjórn - 248

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð hafnarstjórn frá 24. ágúst sl. til afgreiðslu.

    1. 17.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    2. 17.2 Beiðni um umsögn vegna sjókvíeldis á 10.000 tonnum af laxi í Reyðarfirði2008013
    3. 17.3 Beiðni frá Samskip - Gjaldskrá2006164
    4. 17.4 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu á Samskip Hoffell2008069
    5. 17.5 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu á Vera D2008068
    6. 17.6 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    7. 17.7 Umsögn vegna endurnýjunar hafnsöguréttinda2008071
    8. 17.8 Hafnasambandsþing 2020 - 24.-25.september nk.2007025
    9. 17.9 Styrkumsókn - Útsæði - 20202007071
    10. 17.10 Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður2006157
    11. 17.11 Ný þjónustumiðstöð - Mjóeyrarhöfn2006158
    12. 17.12 Umsögn um lagafrumvarp2008126