Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 248

25. ágúst 2020, kl. 16:00 til 18:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Heimir Snær Gylfason, varamaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 676 liður 17

    Framlögð fundargerð hafnarstjórn frá 24. ágúst sl. til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 296 liður 4

    Enginn tok til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til umfjöllunar í bæjarráði, menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráði og safnanefnd.

    Umhverfisstjóri kynnti drög að umhverfisstefnu.

  2. 2. Beiðni um umsögn vegna sjókvíeldis á 10.000 tonnum af laxi í Reyðarfirði

    Mál 2008013 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Matvælastofnunar, dagsett 6. ágúst 2020, um umsögn vegna umsóknar Laxa eignarhaldsfélags ehf á 10.000 tonna eldi í Reyðarfirði í samræmi við 7. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi. Matvælastofnun hefur til meðferðar umsókn um rekstrarleyfi frá Löxum eignarhaldsfélagi ehf. vegna 10.000 tonna hámarkslífmassa á frjóum laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Laxar eignarhaldsfélag eru fyrir með gild rekstrarleyfi í Reyðafirði. Verði af leyfisútgáfu rúmast hámarkslífmassi leyfa Laxa eignarhaldsfélags innan bæði burðarþolsmats og áhættumats Hafrannsóknarstofnunar. Hafnarstjórn felur bæjarstjóra að gera umsögn Fjarðabyggðar.

  3. 3. Beiðni frá Samskip - Gjaldskrá

    Mál 2006164 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Samskip hf. vegna gjaldskrár Fjarðabyggðarhafna. Málinu er frestað til næsta fundar hafnarstjórnar.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu á Samskip Hoffell

    Mál 2008069 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip dags. 14. ágúst 2020 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Sergey Nikanorov, skipstjóra á MS Samskip Hoffell. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna undanþágu.

  5. 5. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu á Vera D

    Mál 2008068 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskip dags. 13. ágúst 2020 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Heiko Lysse, skipstjóra á Vera D. Hafnarstjórn hafnar umbeðinni beiðni um undanþágu m.t.t. stærðar skipsins.

  6. 6. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Útboð í framleiðslu og rekstur staura fyrir stækkun Eskifjarðarhafnar hefur verið auglýst og lýkur kl.14.00 þann 22. september 2020.

    Næsta skref í framkvæmdinni er að hefja uppdælingu efnis vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar. Efnið mun nýtast í uppfyllingu og varnargarð. Fyrir liggur tilboð í uppdælingu efnisins. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga um uppdælingu samkvæmt fyrirliggjandi tilboði og felur hafnarstjóra að ganga frá samningi.

  7. 7. Umsögn vegna endurnýjunar hafnsöguréttinda

    Mál 2008071 Allur ferill málsins

    Umsögn vegna endurnýjunar hafnsöguskírteinis Ingva Rafns Guðmundssonar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að veita umbeðna umsögn.

  8. 8. Hafnasambandsþing 2020 - 24.-25.september nk.

    Mál 2007025 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til Hafnasambandsþings þann 24. og 25. september næstkomandi. Hafnasambandsþinginu hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

  9. 9. Styrkumsókn - Útsæði - 2020

    Mál 2007071 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk vegna bæjarhátíðarinnar Útsæðisins. Samkvæmt bókun bæjarráðs frá 25.5.2020 samþykkir bæjarráð að helmingur framlaga til hátíða sem ekki fara fram á árinu 2020 verði til viðbótar úthlutunar hátíðanna á árinu 2021 til þeirra sem þess óska. Hafnarstjórn hafnar beiðni um styrk en samþykkir að úthlutunin verði samkvæmt bókun bæjarráðs fyrir næsta ár.

  10. 10. Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður

    Mál 2006157 Allur ferill málsins

    Kynnt áform um að byggja þjónustumiðstöð á Norðfirði. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.

  11. 11. Ný þjónustumiðstöð - Mjóeyrarhöfn

    Mál 2006158 Allur ferill málsins

    Kynnt áform um að byggja þjónustumiðstöð á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.

  12. 12. Umsögn um lagafrumvarp

    Mál 2008126 Allur ferill málsins

    Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr.61/2013. Umsagnarfrestur er til 7.september. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna og skila inn umsögn.