Hafnarstjórn, fundur 247
30. júní 2020, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 670 liður 8
Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. júní lögð fram til afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
Mál 2006135 Allur ferill málsins
Fiskeldi Austfjarða hf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu 7.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði, Fjarðabyggð.
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 106/2000 óskar Skipulagsstofnun eftir umsögn um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Meðfylgjandi er frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar auk viðauka.
Kynnt tilkynning um beiðni á umsögn vegna frummatsskýrslu. Hafnarstjórn ræddi forsendur og felur atvinnu- og þróunarstjóra að taka saman gögn fyrir umsögn í samstarfi við verkefnastjóra hafna og leggja fyrir hafnarstjórn.
-
2. Ósk um umsögn hafnaryfirvalda
Mál 2006117 Allur ferill málsins
Erindi frá Fiskistofu dags. 19. júní 2020 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Síldarvinnslunnar hf. um leyfi til heimavigtunar uppsjávarfisks í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað.
Hafnarstjórn er fylgjandi því að Síldarvinnslunni h.f. verði veitt heimavigtunarleyfi, en fyrirtækið er búið að leggja í miklar fjárfestingar á háþróuðum vigtarbúnaði. Hafnarstjóra er falið að skrifa umsögn í samræmi við álit hafnarstjórnar og senda inn til Fiskistofu.
-
3. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar sem barst þann 25.júní síðastliðinn.
-
4. Verkefni hafnarsjóðs
Mál 1908100 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað vegna vöktunar Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ræða við mögulega þjónustuaðila um fyrirkomulag sólarhringsvöktunar á Mjóeyrarhöfn og leggja málið fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
5. Ársskýrsla Fjarðabyggðarhafna 2019
Mál 2005062 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að ársskýrslu Fjarðabyggðarhafna 2019
-
6. Sjávarútvegsráðstefnan 2020
Mál 2006122 Allur ferill málsins
Sjávarútvegsráðstefnan 2020 verður haldin í Hörpu dagana 19. og 20. nóvember. Sjávarútvegsráðstefnan stuðlar að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg og er vettvangur fyrir samskipti allra þeirra sem koma að greininni. Hafnarstjórn mun senda fulltrúa á ráðstefnuna.
-
7. Lagfæring fjöru utan við Bæjarbryggju - Neskaupstaður
Mál 2007005 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn samþykkir að fara í lagfæringar á fjöru utan við Bæjarbryggjuna á Norðfirði þar sem sjógangur hefur étið mikið úr fjörunni. Markmið framkvæmdarinnar er að auka notagildi fjörunnar.