Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 670

6. júlí 2020, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Stefán Aspar Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Stefán Aspar Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 295 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021

    Mál 2004009 Allur ferill málsins

    Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020-2021 tekin til síðari umræðu.

    Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar ferðamálastefnu Fjarðabyggðar 2020-2021.

  2. 2. Markaðsátak og sýnileiki 2020

    Mál 2005044 Allur ferill málsins

    Eydís Ásbjörnsdóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar. Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa um átak sveitarfélagsins í sýnileika og vitund almennings um Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir að farið verði í átakið til samræmis við minnisblaðið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað og upplýsingafulltrúa falið að gera samning við hlutaðeigandi um framkvæmd verkefnisins.

  3. 3. Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði

    Mál 2006076 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að vísa til stefnu bæjarstjórnar um nýtingaráætlanir strandsvæða Fjarðabyggðar vegna fyrirspurnar frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti um laxeldi í sunnanverðum Norðfjarðarflóa.

    Bæjarráð tekur undir bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og felur bæjarritara að svara erindinu.

  4. 4. Beiðni blakdeildar Þróttar um fund

    Mál 2006148 Allur ferill málsins

    Fulltrúar Blakdeildar Þróttar fóru yfir starfsemi deildarinnar og rekstur hennar.

    Bæjarráð vísar til íþrótta- og frístundastjóra og formanns íþrótta- og tómstundanefndar að yfirfara reglur um úthlutun styrkja til íþróttafélaga.

  5. 5. Framkvæmdasvið verkefni 2020

    Mál 2003017 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs. Á síðasta fundi nefndarinnar var lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs varðandi framkvæmdir ársins 2020. ESU samþykkti að haldið verði áfram með þau verkefni sem eru á áætlun ársins. Bæjarráð vísar til gerðar viðauka.

  6. 6. Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 3

    Mál 2007013 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 um viðbrögð við kórónafaraldrinum, framkvæmdum við; nýjan vatnstank, Egilsbúð, Gamla barnaskóla, Skólamiðstöð Breiðdalsvík, götur, byggingu þjónustumiðstöðva, styrk til Sköpunarmiðstöðvar, kaupum á íþróttastúku, framlögum til hjúkrunarheimila, almannavarna og breytinga á framlögum Jöfnunarsjóðs.

    Samandregin hafa þessar breytingar áhrif að rekstrarútgjöld í A hluta hækka nettó um 216,4 m. kr., fjárfestingar í A hluta hækka um 38 m. kr. og eignasala í A hluta hækkar um 30 m. kr. auk þess sem lántaka í A hluta vex um 400 m. kr. Í B hluta hækka fjárfestingar um 243 m. kr. auk þess sem lántaka í B hluta vex um 100 m. kr. Samandregið sjóðsstaða áætluð í lok árs 2020 um 645 m. kr. eftir breytingar. Lántaka Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. hækki um 400 m. kr. í fjárhagsáætlun ársins 2020 og verði 400 m. kr. á árinu 2020. Lántaka Vatnsveitu hækki um 100 m. kr. í fjárhagsáætlun ársins 2020 og verði 200 m. kr. á árinu 2020 Aukin lántaka Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og Vatnsveitu greiðist í gegnum viðskiptareikning sjóðanna við Aðalsjóð og eigið fé Aðalssjóðs hækki um sömu upphæð.

    Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2020.

  7. 7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 264

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 29. júní lögð fram til afgreiðslu.

    1. 7.1 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn2006135
    2. 7.2 Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði2006076
    3. 7.3 Framkvæmdasvið verkefni 20202003017
    4. 7.4 Skólavegur framkvæmdir 20191906142
    5. 7.5 Snjómokstur í Fjarðabyggð2006083
    6. 7.6 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112
    7. 7.7 740 Naustahvammur 64, óveruleg breyting á deiliskipulagi2006091
    8. 7.8 735 Eskifjarðarhöfn - Framkvæmdaleyfi, stækkun2006138
    9. 7.9 750 Búðavegur 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2006032
    10. 7.10 730 Öldugata 3 - byggingarleyfi, íbúðarhús2006014
    11. 7.11 740 Tandrastaðir - byggingarleyfi, vatnstankur2006137
    12. 7.12 755 Hólaland 22 - byggingarleyfi, breytt aðkoma að lóð2006113
    13. 7.13 735 Lambeyrarbraut 3 - byggingarleyfi, endurgerð þaks2006143
    14. 7.14 750 Tunguholt - byggingarleyfi, breytt notkun2006119
    15. 7.15 730 Bakkagerði 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2006066
    16. 7.16 730 Óseyri 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2001078
    17. 7.17 740 Hafnarbraut 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2006011
    18. 7.18 730 Mánagata 19 - umsókn um stækkun lóðar2006107
    19. 7.19 730 Heiðarvegur 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2004075
    20. 7.20 735 Bleiksárhlíð 57 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2005084
    21. 7.21 740 Hafnarbraut 22 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi1904001
    22. 7.22 Egilsbraut 4 - skjalasafn1907058
    23. 7.23 Umsókn um styrk til fornleifaskráningar í Vöðlavík, á Krossanesi og Útsveit1705065
    24. 7.24 Hálendi Austurlands - ályktun aðalfundar Landverndar 20202006092
    25. 7.25 Gerð hjólabrautar í Neskaupstað2006116
    26. 7.26 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20202002144
    27. 7.27 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar1908022
  8. 8. Hafnarstjórn - 247

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. júní lögð fram til afgreiðslu.

    1. 8.1 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn2006135
    2. 8.2 Ósk um umsögn hafnaryfirvalda2006117
    3. 8.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    4. 8.4 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    5. 8.5 Ársskýrsla Fjarðabyggðarhafna 20192005062
    6. 8.6 Sjávarútvegsráðstefnan 20202006122
    7. 8.7 Lagfæring fjöru utan við Bæjarbryggju - Neskaupstaður2007005