Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 669

29. júní 2020, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 295 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmdasvið verkefni 2020

    Mál 2003017 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað varðandi stöðu framkvæmda ársins 2020 sem lagt er fram sem trúnaðarmál. Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhalds miðað við fjárhagsáætlun ársins.

  2. 2. Skólavegur 44 Fáskrúðsfirði

    Mál 2006132 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Bjarna G. Björgvinssonar lögmanns varðandi kauptilboð í Skólaveg 44 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  3. 3. Skerðing framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2020

    Mál 2005096 Allur ferill málsins

    Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa verið endurskoðuð í takt við nýja áætlun um tekjur sjóðsins. Tekjur sjóðsins vegna efnahagslegra áhrifa af Covid-19 faraldrinum hafa verið endurmetnar. Hin nýja áætlun um tekjur sjóðsins gerir ráð fyrir að tekjur hans lækki um tæpa 3,8 milljarða kr. Samkvæmt nýjum áætlunum munu áætluð framlög til Fjarðabyggðar lækka samtals um 110 m.kr. frá fyrri áætlun, sem skiptast annars vegar í lækkun fasteignagjaldajöfnunar um 46,4 m.kr. og hinsvegar í lækkun á útgjaldajöfnunarframlagi um 63,3 m.kr.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að fylgjast vel með þróun mála og upplýsa bæjarráð. Jafnramt vísar bæjarráð erindinu til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar 2021.

  4. 4. Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 2020

    Mál 2006114 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Héraðsskjalasafni um tillögur að breytingum á stofnsamnningi safnsins vegna sameiningar sveitarfélaga.

    Bæjarráð vísar erindi til umsagnar safnanefndar og verður það tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  5. 5. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar

    Mál 1805134 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til síðari umræðu bæjarráðs uppfærðri umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir umferðarsamþykkt samhljóða.

  6. 6. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021

    Mál 2004009 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til afgreiðslu bæjarráðs við fyrri umræðu ferðamálastefnu Fjarðabyggðar. Ferðmálastefna hefur verið lögð fram í öllum fastanefndum.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að vísa ferðamálastefnu til síðari umræðu bæjarráðs.

  7. 7. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018 - 2022 til umfjöllunar í bæjarráði, menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráði og safnanefnd.

    Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir að umhverfisstjóri mæti á fund bæjarráðs.

  8. 8. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar

    Mál 1908022 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs varðandi viðgerð á sundlauginni á Reyðarfirði.

    Málið rætt og vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar til umsagnar. Að því loknu verður málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  9. 9. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði

    Mál 2004112 Allur ferill málsins

    Lögð fram fundargerð 4.fundar starfshóps og niðurstaða um uppbyggingu íþróttahúss á Reyðarfirði. Starfshópur um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði vísar kostnaðaráætlun og samþykkt

    hópsins til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

    Málið tekið til umræðu og vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar til umsagnar. Að því loknu verður málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  10. 10. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 28

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 22. júní lögð fram til umfjöllunar og samþykktar bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar.

    1. 10.1 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    2. 10.2 Starfshópur um tjaldsvæði2004044
    3. 10.3 Markaðsátak og sýnileiki 20202005044
    4. 10.4 Staða landbúnaðar í Fjarðabyggð2006101
    5. 10.5 Menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar 20202006097
    6. 10.6 Atvinnuþing í Fjarðabyggð2006102