NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 28
22. júní 2020, kl. 17:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Höskuldur Björgúlfsson, varamaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 669 liður 10
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 22. júní lögð fram til umfjöllunar og samþykktar bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar.
Dagskrá
-
1. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
Mál 2004009 Allur ferill málsins
Ferðmálastefna hefur verið lögð fram í öllum fastanefndum. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir ferðamálastefnu og vísar henni til umfjöllunar og staðfestingar í bæjarstjórn.
-
2. Starfshópur um tjaldsvæði
Mál 2004044 Allur ferill málsins
Lagðar fram fundargerðir og niðurstaða starfshóps um fyrirkomulag tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð. Starfshópurinn telur að leggja beri áherslu á að hefja framkvæmdir á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Framkvæmdum á Eskifirði yrði flýtt eins og kostur er í framhaldi. Fyrirhugaðar ofanflóðaframkvæmdir í Neskaupstað kalla á að tjaldsvæðið verði flutt. Leitað verður samkomulags við Ofanflóðasjóð um sambærilegt tjaldsvæði við Strandgötu 62, vestan við byggðina. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á árinu 2021. Bæjarráð vísar tillögum starfshópsins til menningar- og nýsköpunarnefndar til áframhaldandi vinnslu. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir tillögur starfshópsins og vísar þeim til vinnu við starfs- og fjárhagsátælun ársins 2021.
-
3. Markaðsátak og sýnileiki 2020
Mál 2005044 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra og upplýsingafulltrúa um lykil að Fjarðabyggð sem er útfærsla á verkefni tengt stuðningi við ferðaþjónustu. Gefnir verða út afsláttarmiðar í sundlaugar og söfn sem ferðaþjónustuaðilar framselja viðskiptavinum.
Bæjarráð hefur samþykkt tillögu sem fram kemur í minnisblaðinu. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála útfærslu á verkefninu.
-
4. Staða landbúnaðar í Fjarðabyggð
Mál 2006101 Allur ferill málsins
Umræður um núverandi stöðu landbúnaðar í Fjarðabyggð og hvernig sveitarfélagið getur stuðlað að aukningu í landbúnaði og stutt við frekari uppbyggingu greinarinnar á svæðinu. Menningar- og nýsköpunarnefnd Óskar eftir að atvinnu- og þróunarstjóri taki saman minnisblað um stöðu landbúnaðar í Fjarðabyggð og leggi fram í nefndinni um miðjan ágúst.
-
5. Menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar 2020
Mál 2006097 Allur ferill málsins
Lögð fram drög forstöðumanns menningarstofu að menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar 2020. Nánari dagsetningar munu liggja fyrir fyrstu vikuna í júlí.
-
6. Atvinnuþing í Fjarðabyggð
Mál 2006102 Allur ferill málsins
Tillaga formanns um að halda atvinnuþing í Fjarðabyggð í haust. Umræður um útfærslu og framkvæmd. Menningar- og nýsköpunarnefnd sammála að stefna að því að halda atvinnuþing í haust. Nánara fyrirkomulag tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.