Skólavegur framkvæmdir 2019
Mál 1906142 Fyrst á dagskrá 1. júlí 2019, síðast 6. júlí 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 237 liður 3
Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs þar sem kynnt er staða framkvæmda við Skólaveg á Fáskrúðsfirði, dagsett 29. júní 2019.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar um að stefnt verði að því að endurbætur við Skólaveg verði kláraðar á árinu að undanskilinni malbikun sem verði kláruð vorið 2020 og þá verður framkvæmdum lokið við Skólaveg. Nefndin samþykkir jafnframt að efni sem fellur til verði nýtt til að laga fláa neðan Skólavegar.
-
Bæjarráð, fundur 623 liður 11.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 237“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2020
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 264 liður 4
Sviðstjóri framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda við Skólaveg og verkefna sem því tengjast.
Verið er að vinna við heimtaugar og frágang í ystu botnlöngunum ásamt því að undirbúningur fyrir lagningu malbiks er að hefjast, sem áætlað er að verði um 10 júlí nk.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur áherslu á að vinna við frágang götunnar fyrir malbik hefjist sem fyrst. Jafnframt að þess verði gætt að rykbinda götuna á meðan malbik er ekki komið á hana.
-
Bæjarráð, fundur 670 liður 7.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 264“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.