Hafnarstjórn, fundur 249
15. september 2020, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 679 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 249 frá 15.september, lögð fram til afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021
Mál 2005026 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri mætti á fund stjórnarinnar og fór yfir fjárhagsáætlunarvinnuna fyrir árið 2021. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra, verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna fjárhagsáætlun 2021 og leggja fyrir að nýju.
-
2. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lögð fram uppfærð kostnaðaráætlun fyrir stækkun Eskifjarðarhafnar
-
3. Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum
Mál 2002152 Allur ferill málsins
Lögð fram skýrsla Mannvits um niðurstöður rannsóknardælingar í Norðfjarðarflóa. Hafnarstjórn felur formanni og hafnarstjóra að funda með formanni Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs til að ræða efnistökumál í Fjarðabyggð.
-
4. Bryggjubrunnur á Reyðarfirði
Mál 2009064 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Olíudreifingar um leyfi til endurnýjunar bryggjubrunns á Olíubryggjunni á Reyðarfirði. Hafnarstjórn fyrir sitt leyti samþykkir þessa framkvæmd að því gefnu öllum öryggiskröfum sé mætt.
-
5. Beiðni frá Samskip - Gjaldskrá
Mál 2006164 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Samskip hf. vegna gjaldskrár Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn samþykkir að skoða erindi Samskips í tengslum við vinnu fjárhagsáætlunar 2021. Verkefnastjóra hafna falið að halda utan um þá vinnu.
-
6. Umsögn vegna breytingar á lögum um byggðakvóta nr. 116/2006
Mál 2009038 Allur ferill málsins
Bæjarráð hefur falið atvinnu- og þróunarstjóra að vinna að umsögn í samráði við hafnarstjóra. Jafnframt vísað til hafnarstjórnar til umræðu. Atvinnu- og þróunarstjóri kom á fundinn og kynnti málið.
-
7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
Mál 2001204 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi Hafnasambands Íslands þann 24.ágúst síðastliðinn.
-
8. Sjávarútvegsráðstefnan 2020
Mál 2006122 Allur ferill málsins
Sjávarútvegsráðstefnunni 2020 hefur verið frestað fram á næsta ár.
-
9. Spennistöð á Mjóeyrarhöfn
Mál 2009098 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar hönnunargögn vegna nýrrar spennistöðvar á Mjóeyrarhöfn. Vinna verkefnisins tengist styrk til orkuskipta í höfnum sem Fjarðabyggðarhafnir hlutu í maí síðastliðnum.
-
10. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2020
Mál 2008124 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2020 var haldinn 3.september að Strandgötu 14 Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkti milli funda að senda Snorra Styrkársson með umboð Fjarðabyggðarhafna á aðalfundinn og að tilnefna í stjórn Karl Óttar Pétursson og Snorra Styrkársson, og til vara Rúnar Má Gunnarsson.