Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 250

6. október 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 683 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október sl. lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 299 liður 5

    Til máls tóku: Sigurður Ólafsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021

    Mál 2005026 Allur ferill málsins

    Fjárfestingaráætlun og launaáætlun ársins 2021 lögð fyrir. Hafnarstjórn samþykkir áætlunina og vísar henni til frekari vinnu við fjárhagsáætlun.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2021

    Mál 2009113 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu hafnarstjórnar. Hafnarstjóra ásamt starfsmönnum falið að útfæra ákveðna liði gjaldskrárinnar í samræmi við umræður á fundinum.

  3. 3. Skemmdir á Hafskipabryggju á Eskifirði

    Mál 2010014 Allur ferill málsins

    Skemmdir eftir ásiglingu komu í ljós á Hafskipabryggju á Eskifirði um liðna helgi er þekja féll niður. Hafnarstjórn felur framkvæmdasviði að fara í viðgerð á bryggjunni ásamt því að skoða framtíðar viðgerðir á bryggjunni.

  4. 4. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Þriðjudaginn 22.september 2020 voru tilboð opnuð í framleiðslu og rekstur staura fyrir stækkun Eskifjarðarhafnar. Nefndarmenn hafnarstjórnar samþykktu milli funda í tölvupósti að taka tilboði lægstbjóðanda sem er 86% af kostnaðaráætlun.

  5. 5. Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum

    Mál 2002152 Allur ferill málsins

    Á síðasta fundi hafnarstjórnar var formanni og hafnarstjóra falið að funda með formanni eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs til að ræða efnistökumál í Fjarðabyggð. Sá fundur fór fram 24.september og var ákveðið að skoða efnistökumál í víðara samhengi í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Fjarðabyggðar og fresta frekari rannsóknum vegna efnistöku af hafsbotni í Norðfjarðarflóa.

  6. 6. Rampur fyrir litla seglbáta og kajaka

    Mál 2009174 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni frá Siglingaklúbbi Austurlands um að Fjarðabyggðarhafnir útbúi ramp út í sjó við aðstöðuhús klúbbsins. Hafnarstjórn felur framkvæmdasviði að kostnaðarmeta erindið og fara yfir forsendur í tengslum við aðrar framkvæmdir.

  7. 7. Ástandsskoðun á Rex NS 3

    Mál 2009216 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ástandsskýrsla fyrir Rex NS 3. Hafnarstjórn felur framkvæmdasviði í samstarfi við Safnastofnun að skoða með framkvæmdir við Rex NS 3 og leggja fyrir að nýju.

  8. 8. Spennistöð á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2009098 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar deiliskipulagsbreyting á Hrauni 1 sem gerð var vegna framkvæmda við spennistöð á Mjóeyrarhöfn.

  9. 9. Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður

    Mál 2006157 Allur ferill málsins

    Lagðir fram til kynningar aðaluppdrættir af nýrri þjónustumiðstöð á Norðfirði.

  10. 10. Smábátahöfn Breiðdalsvík - stækkun

    Mál 2002150 Allur ferill málsins

    Teikningar af trébryggju sem vinna er hafin við á Breiðdalsvík lagðar fram til kynningar.

  11. 11. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2020

    Mál 2008124 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Fiskmarkaðar Austurlands og tilkynning frá Fiskmarkaðnum um greiðslu arðs lögð fram til kynningar.

  12. 12. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020

    Mál 2001204 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 426. fundar Hafnasambands Íslands frá 28.september síðastliðnum

  13. 13. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lagt fram tilboð í stálþilsplötur í bakþil fyrir landvegg í nýrri höfn á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og felur hafnarstjóra að ganga frá samningi.