Bæjarráð, fundur 683
12. október 2020, kl. 08:30 til 12:05, í fjarfundarbúnaði í Neskaupstað og á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 299 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráð frá 12. október sl. að undandskildum lið 4 staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Úttekt á skipulagi og rekstri 06 íþrótta- og æskulýðsmála
Mál 2007060 Allur ferill málsins
Framlögð skýrsla frá Ráðrík ehf. um íþróttamannvirki í Fjarðabyggð og tillögur um reksturs málaflokks íþróttamála.
Skýrslunni vísað til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundanefnd og til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til úrvinnslu.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Mál 2005017 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2021-2024. Lagðar fram spár um hagþróun frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Þjóðhagsstofnun auk minnisblaðs fjármálastjóra.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2021. Fjármálastjóra og bæjarstjóra falið að rýna reksturinn og niðurstöður úr tillögum nefndanna.
-
3. Samningur um sölu eigna Rafveitu Reyðarfjarðar
Mál 1912136 Allur ferill málsins
Framlagðir samningar vegna kaupa Orkusölunnar á framleiðsluhluta í samræmi við kaupsamning frá 18. desember 2019.
Bæjarráð samþykkir samninga og felur bæjarstjóra undirritun gagna vegna sölu eignarinnar.
-
4. Kauptilboð í Nesbakka 21 2. hæð 5-6 herb Neskaupstað
Mál 2010008 Allur ferill málsins
Framlagt gagntilboð vegna sölu á Nesbakka 21, 2. hæð í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir gagntilboðið og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021
Mál 2005025 Allur ferill málsins
Farið yfir fjárheimildir í einstökum málaflokkum, slökkviliðsstjóri sat þennan lið fundarins. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
-
6. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará
Mál 1702150 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Framkvæmdasýslu ríkisins um útboð 21261, Ofanflóðavarnir Eskifirði - Lambeyrará. Tillaga Framkvæmdasýslunnar er að niðurstaða viðræðna um samningskaup verði tekið. Jafnframt lagt fram bréf frá Ofanflóðasjóði um töku tilboðs.
Bæjarráð samþykkir að tilboðinu verði tekið.
-
7. Ástand íbúðar
Mál 2010032 Allur ferill málsins
Lagðar fram upplýsingar um mat á stöðu húsnæðisins að Sólheimum 3 í Breiðdal.
Bæjarráð samþykkir að ekki séu forsendur fyrir því að leigja íbúðina í því ástandi sem hún er og leigusamningi er því sagt upp. Húsnæði verði sett í framhaldi í sölu í því ástandi sem það er.
-
8. Svæðisskipulag fyrir Austurland
Mál 1602151 Allur ferill málsins
Bréf Skipulagsstofnunar frá 5.október sl., til svæðisskipulagsnefndar Austurlands, er varðar gerð svæðisskipulags fyrir Austurland í ljósi breyttra aðstæðna eftir sameiningu sveitarfélaga á Austurlandi.
Skipulagsstofnun hefur að hluta til hafnað að greiða kostnaðarframlag úr skipulagssjóði á þeim forsendum að skipa þurfi nýja svæðisskipulagsnefnd og hefja skipulagsferli að nýju.
Lagt fram til kynningar.
-
9. 750 Stekkholt 10 - Umsókn um lóð
Mál 2009170 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar og Grétars Helga Geirssonar, dagsettri 18. september 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 10 á Fáskrúðsfirði undir parhús sem sambyggt yrði húsi á lóðinni við Stekkholt 8.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur auk þess samþykkt að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi þannig að gert verði ráð fyrir parhúsi á lóðunum.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
10. 750 Stekkholt 8 - Umsókn um lóð
Mál 2009169 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar og Grétars Helga Geirssonar þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 8 á Fáskrúðsfirði undir parhús sem sambyggt yrði húsi á lóðinni við Stekkholt 10.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur auk þess samþykkt að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi þannig að gert verði ráð fyrir parhúsi á lóðunum.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
11. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 28.október 2020
Mál 2010039 Allur ferill málsins
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn miðvikudaginn 28. október nk. á Borgarfirði Eystri eða í fjarfundi ef aðstæður krefjast.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
12. Nefndaskipan Miðflokksins
Mál 1909045 Allur ferill málsins
Breyting á nefndaskipan Miðflokksins í menningar- og nýsköpunarnefnd.
Magnea María Jónudóttir tekur sæti aðalmanns í menningar- og nýsköpunarnefnd og Anna Þórhildur Kristmundsdóttir tekur sæti varamanns í nefndinni.
-
13. Vatnstjón á Eyrarstíg 1
Mál 1801118 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu málsins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og bæjarráð mun skoða gögn frekar fyrir næsta fund.
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 271
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 5. október sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá2002092
- 14.2 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20212009126
- 14.3 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20212009134
- 14.4 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20212009125
- 14.5 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20212009129
- 14.6 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20212009114
- 14.7 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20212009117
- 14.8 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20212009128
- 14.9 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20212009130
- 14.10 Gjaldskrá félagsheimila 20212009132
- 14.11 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
- 14.12 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
- 14.13 Biðskýli við Valhöll2009210
- 14.14 730 Hraun 9a - Umsókn byggingarleyfi, vakthús2009167
- 14.15 730 Óseyri 1 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting utanhúss og fjölgun eignarhluta2010003
- 14.16 740 Egilsbraut 6 - Umsókn byggingarleyfi, milligólf2009203
- 14.17 740 Nesgata 5 - Byggingarleyfi, breytt notkun2009150
- 14.18 750 Stekkholt 8 - Umsókn um lóð2009169
- 14.19 750 Stekkholt 10 - Umsókn um lóð2009170
- 14.20 740 Hlíðargata 21 - Umsókn um stækkun lóðar2009207
- 14.21 750 Stekkholt 15 - Umsókn um stækkun lóðar2009205
- 14.22 Ábending lögreglu vegna umferðaröryggis2010009
-
15. Fræðslunefnd - 90
Fundargerð fræðslunefndar frá 7. október sl. lögð fram til afgreiðslu
- 15.1 Gjaldskrá tónlistarskóla 20212009115
- 15.2 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 20212009119
- 15.3 Gjaldskrá grunnskóla 20212009127
- 15.4 Gjaldskrá leikskóla 20212009122
- 15.5 Gjaldskrá skóladagheimila 20212009120
- 15.6 Leikskólamál2009173
- 15.7 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020
-
16. Hafnarstjórn - 250
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október sl. lögð fram til afgreiðslu
- 16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20212005026
- 16.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20212009113
- 16.3 Skemmdir á Hafskipabryggju á Eskifirði2010014
- 16.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 16.5 Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum2002152
- 16.6 Rampur fyrir litla seglbáta og kajaka2009174
- 16.7 Ástandsskoðun á Rex NS 32009216
- 16.8 Spennistöð á Mjóeyrarhöfn2009098
- 16.9 Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður2006157
- 16.10 Smábátahöfn Breiðdalsvík - stækkun2002150
- 16.11 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20202008124
- 16.12 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20202001204
- 16.13 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
-
17. Barnaverndarfundargerðir 2020
Mál 2003129 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 119, 120 og 121, lagðar fram til upplýsinga.